Bæjarráð Fjallabyggðar

297. fundur 28. maí 2013 kl. 17:00 - 18:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Styrkumsókn vegna ferðar í Þjóðleikhúsið

Málsnúmer 1305057Vakta málsnúmer

Í erindi Leikfélaganna í Ólafsfirði og á Siglufirði frá 21. maí 2013, er sótt um styrk vegna sýningar leikfélaganna í Þjóðleikhúsinu 16. júní n.k. á leikritinu "Stöngin inn" sem valið var "Áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins 2012/2013".

Bæjarráð óskar leikfélögunum til hamingju með frábæra sýningu og viðukenningu og samþykkir styrk að upphæð 75 þús. sem færist af fjárhagslið yfirstjórnar 21-81-9291

2.Fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016

Málsnúmer 1209099Vakta málsnúmer

Bæjarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra er falið að lagfæra áætlun 2013 - 2016 í samræmi við viðauka og framkomnar ábendingar bæjarráðs og leggja tillögu fyrir næsta fund í bæjarráði.

3.Átak í afþreyingar- og umhverfismálum í Siglufirði

Málsnúmer 1106092Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi breytingu á skipuðum fulltrúum sínum í sáttanefnd sveitarfélagsins og Rauðku.
Nýir fulltrúar eru Unnar Már Pétursson, viðskiptafræðingur og Jóhannes Bjarni Björnsson lögmaður bæjarfélagsins og koma þeir í stað Ólafs H. Marteinssonar og Ingvars Erlingssonar.

4.Snjóflóðavarnir í Siglufirði - uppsetning stoðvirkja í Hafnarhyrnu - tilboð

Málsnúmer 1305013Vakta málsnúmer

89. fundur bæjarstjórnar samþykkti  að fela bæjarráði fullnaðarafgeiðslu málsins.

Samkvæmt upplýsingum Framkvæmdasýslunnar hefur lægst bjóðandi fengið viðeigandi skýringar.

Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum tillögu Framkvæmdasýslu ríkisins um töku tilboðs nr. 15418 í framkvæmdir við snjóflóðavarnir í Hafnarhyrnu í Siglufirði.

Lagt var til að tilboði ÍAV hf yrði tekið en það var að upphæð kr. 447 milljónir 900 þúsund og 335 krónur og er 99,26% af kostnaðaráætlun.

Kostnaðaráætlun var kr. 451.226.500 100%

5.Tækifærisleyfi fyrir Íþróttahúsið í Ólafsfirði

Málsnúmer 1305074Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umsögn til Sýslumannsins á Siglufirði  um tækifærisleyfi fyrir Sjómannafélag Ólafsfjarðar vegna sjómannahátíðar í íþróttahúsinu í Ólafsfirði 2. júní 2013.

6.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 1305073Vakta málsnúmer

Í erindi Sýslumanns á Siglufirði, dagsett 28. maí 2013, er þess farið á leit við Fjallabyggð, að það veiti skriflega umsögn um umsókn Siglunes Guesthouse ehf. kt. 500299-2239 um útgáfu rekstrarleyfis vegna reksturs gististaðar með sama heiti að Lækjargötu 10 Siglufirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þau atriði sem tilheyra umsögn er varðar afgreiðslutíma og staðsetningu.

7.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 1305072Vakta málsnúmer

Í erindi Sýslumanns á Siglufirði, dagsett 28. maí 2013, er þess farið á leit við Fjallabyggð, að það veiti skriflega umsögn um umsókn Bolla og bedda ehf kt 631293-2989 um útgáfu rekstrarleyfis vegna reksturs kaffihúss að Strandgötu 2 Ólafsfirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þau atriði sem tilheyra umsögn er varðar afgreiðslutíma og staðsetningu, enda komi ekki athugasemdir frá skipulags- og umhverfisnefnd varðandi útiveitingasvæði.

8.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

Málsnúmer 1305076Vakta málsnúmer

Í erindi Sýslumanns á Siglufirði, dagsett 28. maí 2013, er þess farið á leit við Fjallabyggð, að það veiti skriflega umsögn um umsókn Bolla og bedda ehf. kt. 631293-2989 um útgáfu nýs rekstrarleyfis vegna gististaðar án veitinga í Tröllakoti í Ólafsfirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þau atriði sem tilheyra umsögn er varðar afgreiðslutíma og staðsetningu.

9.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

Málsnúmer 1305077Vakta málsnúmer

Í erindi Sýslumanns á Siglufirði, dagsett 28. maí 2013, er þess farið á leit við Fjallabyggð, að það veiti skriflega umsögn um umsókn Guðnýjar Róbertsdóttur kt. 260155-2379 um útgáfu nýs rekstrarleyfis vegna gististaðar án veitinga í Íslenska sæluhúsinu að Aðalgötu 22, Siglufirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þau atriði sem tilheyra umsögn er varðar afgreiðslutíma og staðsetningu.

10.Framhaldsaðalfundur Markaðsstofu Norðurlands ses fyrir árið 2012 - 23. maí 2013

Málsnúmer 1305049Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

11.Sumarstörf 2013 - atvinnuátak

Málsnúmer 1304031Vakta málsnúmer

Úthlutun frá Vinnumálastofnun dags. 30.04.2013. Um er að ræða 10 störf.
Verkefnið er í vinnslu hjá vinnuhóp bæjarfélagsins.

12.Úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða - Ólafsvegur 30 0201

Málsnúmer 1305066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Varasjóðs húsnæðismála frá 16. maí 2013 um úthlutun á framlagi vegna sölu á fasteigninni Ólafsvegi 30 íbúð 201 að upphæð kr. 2.599.876.-

13.Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra 2013

Málsnúmer 1301024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá 14. maí 2013.

Fundi slitið - kl. 18:00.