Bæjarráð Fjallabyggðar

284. fundur 29. janúar 2013 kl. 17:00 - 18:00 á bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.27. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 15. mars 2013

Málsnúmer 1301051Vakta málsnúmer

27. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið föstudaginn 15. mars nk. á Grand hóteli í Reykjavík og mun standa frá kl. 9:30 til u.þ.b. 16:00.
Fulltrúar Fjallabyggðar eru bæjarfulltrúarnir Ingvar Erlingsson og Þorbjörn Sigurðsson. Varafulltrúar eru Egill Rögnvaldsson og Bjarkey Gunnarsdóttir.

2.LSR - Iðgjaldaábyrgð fv. starfsmanns

Málsnúmer 1301087Vakta málsnúmer

Lagt fram uppgjör við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins er varðar iðgjöld f.v. starfsmanns vegna tímabilsins janúar 1979 til ágúst 1979.

Bæjarráð staðfestir iðgjaldaábyrgð og fyrirliggjandi uppgjör.

3.Aðildarumsókn sveitarfélaga að rammasamningskerfi Ríkiskaupa fyrir árið 2013

Málsnúmer 1301054Vakta málsnúmer

Í erindi frá Ríkiskaupum frá 14. janúar 2013, er kannaður vilji sveitarfélagsins til áframhaldandi aðild að rammasamningum Ríkiskaupa 2013.

Bæjarráð samþykkir óbreytta og áframhaldandi aðild Fjallabyggðar  að  rammasamningakerfi Ríkiskaupa.

4.Málefni Hornbrekku

Málsnúmer 1211041Vakta málsnúmer

Álitsgerð Valtýs Sigurðssonar hrl. frá 22. janúar 2013 um lagaramma dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hornbrekku, lögð fram til kynningar.  

 

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka upp viðræður við stjórn og forstöðumann Hornbrekku.

5.Launayfirlit janúar - desember 2012

Málsnúmer 1301089Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar launayfirlit Fjallabyggðar fyrir 2012.
Niðurstaðan 0,6% yfir áætlun eða um 5 milljónir.

6.Ársskýrsla Slökkviliðs Fjallabyggðar 2012

Málsnúmer 1301060Vakta málsnúmer

Ársskýrsla fyrir 2012, dagsett 16. janúar 2013, lögð fram til kynningar. 
Bæjarráð þakkar slökkviliðsstjóra greinargóða ársskýrslu.

7.Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2024

Málsnúmer 1110001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar.

Í Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 er sett fram sameiginleg stefna aðildarsveitarfélaganna um byggðaþróun og þá þætti landnotkunar sem talin er þörf á að samræma vegna sameiginlegra hagsmuna sveitarfélaganna. Skipulagstillagan er unnin með samanburði skipulagskosta m.t.t. umhverfis og samfélags í samræmi við ákvæði laga um umhverfismat áætlana.

Hlutverk Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar er auk þess að vinna tillögu að svæðisskipulagi að sjá um framfylgd þess og breytingar á því í samræmi við 9. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórnum ber að sjá til þess að aðalskipulag sveitarfélaga verði í samræmi við svæðisskipulagið þegar það hefur fengið endanlega samþykkt.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga um Svæðisskipulag Eyjafjarðar verði samþykkt.

8.Grunnskóli Siglufirði, grenndarkynning

Málsnúmer 1301075Vakta málsnúmer

Kynntar athugasemdir sem fram komu við grenndarkynningu frá íbúum og húsafriðunarnefnd, vegna viðbyggingar við Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði.

 

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar, að ræða við hlutaðeigandi aðilia er varðar framkomnar athugasemdir og/eða ábendingar.

Fundi slitið - kl. 18:00.