Bæjarráð Fjallabyggðar

280. fundur 04. desember 2012 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Sólrún Júlíusdóttir varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Samningur um rekstrar- og fjárhagslega úttekt á Fjallabyggð

Málsnúmer 1211089Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur við HLH ehf., kt.480409-0430 um fjárhagslega úttekt og tillögur til frekari hagræðingar

í rekstri og fjármálum sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum fyrirliggjandi samning og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
Sólrún Júlíusdóttir situr hjá og óskar að bókað sé að hún hafi ekki forsendur til að meta úttektaraðila.

2.Samningur um rekstur skíðasvæðis í Tindaöxl 2013

Málsnúmer 1211088Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur um rekstur á skíðasvæðinu í Tindaöxl.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samnig og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

3.Styrkumsóknir 2013 - Ýmis mál

Málsnúmer 1209040Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir eftirtalda styrki.

1. Til Sjónarhóls, kr. 25.000.-

2. Til Hestamannafélagsins Glæsis - styrkur til greiðslu á fasteignaskatti.

3. Til Ferðafélagsins Trölla, kr. 300.000.-

4. Til Sævars Birgissonar, kr. 50.000.-

5. Til Foreldrafélags Grunnskólans, kr. 50.000.-

6. Til Björgunarsveitarinnar Tinds, kr. 500.000.-

    Til sömu aðila styrkur til greiðslu fasteignaskatts.

7. Til Björgunarsveitarinnar Stráka kr. 500.000.-

    Til sömu aðila styrkur til greiðslu fasteignaskatts.

8. Til Foreldrafélags Leikskála, kr. 50.000.-

9. Til Foreldrafélags Leikhóla, kr. 50.000.-

Bæjarráð hafnaði neðantöldum umsóknum um fjármagn.

1.  Frá Unglingadeildinni Smástrákum.

2.  Frá Arndísi Lilju Jónsdóttur.

3.  Frá Hestamannafélaginu Glæsi.

4.  Frá Neytendasamtökunum.

4.Vegna aðstöðukostnaðar á gámi

Málsnúmer 1211072Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð 22.937.- til greiðslu á stöðuleyfi gáms hjá Skotveiðifélagi Ólafsfjarðar.

5.Fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016

Málsnúmer 1209099Vakta málsnúmer

Lögð fram endanleg útfærsla á fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 sem og þriggja ára áætlun fyrir Fjallabyggð.

Eftir yfirferð var samþykkt samhljóða að vísa áætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn.

6.Þyrluskíðun í landi Fjallabyggðar

Málsnúmer 1211069Vakta málsnúmer

Jökull Bergmann kom á fund bæjarráðs og var hann boðinn velkominn til fundar.
Til umræðu voru hugmyndir hans um þjónustu við þyrluskíðun í bæjarfélaginu.

Afgreiðslu frestað.

7.Umsögn um frumvarp til laga um húsaleigubætur 49.mál

Málsnúmer 1211080Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Velferðarnefndar Alþingis um frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna), 49. mál.

8.Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2012

Málsnúmer 1202007Vakta málsnúmer

Fundargerð 801. fundar frá 23. nóvember lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.