Bæjarráð Fjallabyggðar

274. fundur 18. október 2012 kl. 12:00 - 14:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Sólrún Júlíusdóttir varamaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga 2012 og 2013

Málsnúmer 1210014Vakta málsnúmer

Lögð fram spá Sambands íslenskra sveitarfélaga á staðgreiðslu sveitarfélaga.  Þar kemur fram að áætluð staðgreiðsla fyrir Fjallabyggð er 878 milljónir fyrir árið 2013.

2.Fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016

Málsnúmer 1209099Vakta málsnúmer

Farið var yfir forsendur að fjárhagsáætlun og þær samþykktar.
Fjárhagsramma og forsendum svo samþykktum vísað til umfjöllunar í fagnefndum.

3.Framlenging samnings milli Fjallabyggðar og Fjölíss

Málsnúmer 1210031Vakta málsnúmer

Bæjarráð frestar afgreiðslu þessa erindis og felur bæjarstjóra að kanna ástæðu þess að ekki hefur náðst samningsniðurstaða mili Fjölíss og  Sambands íslenskra sveitarfélaga.

4.Kjörskrárstofnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012

Málsnúmer 1209011Vakta málsnúmer

Kjörskrárstofnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu lagðir fram.
Eftir breytingar sem gerðar hafa verið eru á kjörskrá í Fjallabyggð 1602, 820 karlar og 782 konur.
Skipting í kjördeildir í sveitarfélaginu Fjallabyggð sem hér segir:
Í kjördeild I í Ráðhúsi Siglufjarðar, 2. hæð kjósa íbúar Siglufjarðar. Kjörfundur hefst kl. 10:00.
Í kjördeild II að Ægisgötu 13 í Ólafsfirði (húsi Menntaskólans) kjósa íbúar Ólafsfjarðar. Kjörfundur hefst kl. 10:00.
Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að hann hefst, hafi hálf klukkustund liðið frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita framlagðar kjörskrár.
Jafnframt var tilkynnt breyting í undirkjörstjórn Ólafsfirði.
Í stað Rutar Gylfadóttur kemur Eydís Ósk Víðisdóttir inn sem varamaður.

5.Launayfirlit janúar - september 2012

Málsnúmer 1210041Vakta málsnúmer

Lagt fram launayfirlit fyrir janúar til september 2012.

6.20. ársþing SSNV 12.-13. október 2012

Málsnúmer 1210025Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um þing SSNV þar sem kynnt var skýrsla um starfsemi byggðasamlags um málefna fatlaðra og lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2013.

7.Samfélag,atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun

8.Styrkir til nýsköpunar og þróunar

Málsnúmer 1210027Vakta málsnúmer

Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar og þróunar.

9.Tilkynning um upphæð þjónustugjalds fyrir árið 2013

Málsnúmer 1210020Vakta málsnúmer

Í tilkynningu Flokkunar ehf. frá 5. október 2012, kemur fram að upphæð þjónustugjalds fyrir árið 2013 hækki í 415 kr á íbúa.

10.Ólafsvíkuryfirlýsing - um framgang sjálfbærni í sveitarfélaginu

Málsnúmer 1209025Vakta málsnúmer

Erindi lagt fram til kynningar

11.Ósk um umsögn um tillögu að landskipulagsstefnu 2013-2024

Málsnúmer 1209108Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.  Erindið fær umfjöllun í skipulags- og umhverfisnefnd.

12.Fundagerðir stjórnar Eyþings 2012

Málsnúmer 1203003Vakta málsnúmer

Fundargerð 232. fundar frá 11. september 2012 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:00.