Bæjarráð Fjallabyggðar

249. fundur 06. mars 2012 kl. 16:00 - 19:00 í fundarherbergi í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður Hlöðversson varabæjarfulltrúi
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Ráðstefna slökkviliða og Mannvirkjastofnunar 2012

Málsnúmer 1203007Vakta málsnúmer

Ráðstefna slökkviliða og Mannvirkjastofnunar verður haldin í Reykjavík 15. og 16. mars næstkomandi.
Bæjarráð telur rétt að slökkviliðsstjóri taki þátt í umræddri ráðstefnu að þessu sinni.

2.Stöðuleyfisgjald geymslugáma - ósk um rökstuðning

Málsnúmer 1202102Vakta málsnúmer

Í sameiginlegri fyrirspurn 14 eigenda geymslugáma í Ólafsfirði er óskað eftir rökstuðningi bæjaryfirvalda á óvenjulega háum stöðuleyfisgjöldum að mati fyrirspyrjenda og er vísað m.a. til sambærilegra gjalda í öðrum sveitarfélögum.

Lögð fram gögn umhverfisfulltrúa er sýna tilurð gjaldskrár,samþykki hennar 2009 og samanburð.
Bæjarráð telur rétt að miða við núgildandi gjaldskrá, en málið verður til umfjöllunar við fjárhagsáætlunargerð 2013.

3.Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Höllina

Málsnúmer 1203005Vakta málsnúmer

Í tengslum við umsókn um endurnýjun á rekstarleyfi fyrir Höllina veitingahús í Ólafsfirði, leitar Sýslumaðurinn á Siglufirði eftir því við bæjaryfirvöld, hvort þau hafi einhverjar athugasemdir við endurnýjun fram að færa.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Höllina verði samþykkt.


Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela bæjarstjóra að sjá framvegis um afgreiðslu slíkra erinda enda séu umsóknirnar í samræmi við 13.gr. sbr. 21.gr. laga nr. 85/2007.

Þessi ákvörðun byggir á því að um sé að ræða endurnýjun slíkra leyfa og að engar kvartanir eða ábendingar um úrbætur liggi fyrir, um umræddan rekstur.

4.Fundir deildarstjóra Fjallabyggðar 2012

Málsnúmer 1201046Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 1. mars 2012 lögð fram til kynningar.

5.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 1202112Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

6.Kynning á þjónustu LES.IS

Málsnúmer 1202100Vakta málsnúmer

Í erindi frá fulltrúum LES.IS ehf, er leitað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um þjónustu á sviði skóla- og félagsmála.
Lagt fram til kynningar.

7.Vaxtasamningur Eyjafjarðar fyrir árin 2012 og 2013

Málsnúmer 1202114Vakta málsnúmer

Lögð fram fréttatilkynning frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar frá 23. febrúar 2011 um endurnýjun Vaxtasamnings Eyjafjarðar við Iðnaðarráðuneytið til tveggja ára.

8.Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2012

Málsnúmer 1202007Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 24. febrúar 2012 lögð fram til kynningar.

9.Fundagerðir stjórnar Eyþings 2012

Málsnúmer 1203003Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 31. janúar 2012 lögð fram til kynningar.

10.Fundagerðir stjórnar Hornbrekku 2012

Málsnúmer 1203006Vakta málsnúmer

Fundagerðir frá 31. janúar og 28. febrúar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:00.