Bæjarráð Fjallabyggðar

931. fundur 03. september 2026 kl. 08:45 - 10:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 2606063Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.

2.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs þann 20.ágúst var samþykkt að fresta afgreiðslu málsins.
Bæjarráð þakkar þeim aðilum sem sendu inn umsókn um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal.


Samþykkt
Fulltrúar H-lista og S-lista leggja til að umsóknum um rekstur skíðasvæðisins verði öllum hafnað og að sveitarfélagið sjái sjálft um rekstur skíðasvæðisins á komandi vetri. Svæðið er nú komið í eigu Fjallabyggðar og til þess að fá betri tilfinningu fyrir rekstrinum teljum við nauðsynlegt að sveitarfélagið sjái um rekstur svæðisins amk næsta vetur. Farið verður í gerð rekstraráætlunar fyrir svæðið nú í kjölfarið.

Fulltrúi D-lista bókaði eftirfarandi:
„Fulltrúi D-lista í bæjarráði leggst gegn því að öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal verði hafnað og að Fjallabyggð taki sjálf yfir reksturinn.

Ákvörðun um eigin rekstur sveitarfélagsins er tekin áður en fyrir liggja rekstraráætlun, kostnaðarmat, mannaflaáætlun eða greining á þeirri fjárhagslegu og rekstrarlegu áhættu sem honum fylgir. Sú röksemd að sveitarfélagið þurfi að reka svæðið til að „fá betri tilfinningu fyrir rekstrinum“ getur ekki talist fullnægjandi grundvöllur fyrir ákvörðun um ráðstöfun opinberra fjármuna.

Áformin ganga jafnframt gegn samþykktri stefnumörkun Fjallabyggðar í íþróttamálum, þar sem gert er ráð fyrir útvistun á heildarumsjón og rekstri íþróttasvæða til íþróttafélaga og/eða verktaka með það að markmiði að nýta fagþekkingu og fjármuni betur.

Fulltrúi D-lista styður áframhaldandi rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Skarðsdal. Það er hins vegar óforsvaranlegt að hafna öllum umsóknum og ákveða eigin rekstur sveitarfélagsins áður en rekstraráætlun, mannaflaáætlun og heildstætt kostnaðarmat liggja fyrir.

Meirihlutinn hefur hvorki sýnt fram á hvers vegna umsóknirnar teljast ófullnægjandi né að eigin rekstur sveitarfélagsins sé hagkvæmari eða betur til þess fallinn að tryggja farsælan rekstur svæðisins.
Með ákvörðuninni er bæjarsjóður látinn taka á sig ómetna fjárhagslega og rekstrarlega áhættu. Fulltrúi D-lista getur því ekki stutt tillöguna og telur rétt að afgreiðslu málsins verði frestað þar til fullnægjandi gögn og faglegur, rekjanlegur samanburður á kostunum liggja fyrir."

Fulltrúar H-lista og S-lista bóka eftirfarandi:

"Fulltrúar meirihlutans í bæjarráði geta ekki með nokkru móti skilið fullyrðingu bæjarráðsfulltrúa D-lista, Tómasar Atla Einarssonar, um að bæjarsjóður taki á sig „ómetna fjárhagslega og rekstrarlega áhættu“ með þessari ákvörðun.

Það á varla að þurfa að rifja það upp fyrir bæjarráðsfulltrúa D-listans þær umtalsverðu fjárhæðir, sem á síðustu árum hafa runnið úr bæjarsjóði til þess að koma skíðasvæðinu í það horf sem það er komið. Auðvitað veit bæjarráðsfulltrúi D-listans hvernig í pottinn var búið þegar sveitarfélagið steig inn og tók fulla og rekstar- og fjárfestingalega ábyrgð á Skíðasvæðinu í Skarðsdal - þrátt fyrir að vera ekki á þeim tíma formlegur eigandi svæðisins. Bæjarráðs- og bæjarfulltrúi Tómas Atli var á síðasta kjörtímabili formaður verkefnahóps um framtíðaruppbyggingu í Skarðsdal og leysti það verkefni af mikilli ábyrgð og því kemur það núverandi meirihluta spánskt fyrir sjónir að hann telji nú „fjárhagslega og rekstrarlega áhættu“ sveitarfélagsins aðra en hún var þegar hann stýrði verkefnahópnum. Þær rekstrarforsendur sem lágu til grundvallar því að sveitarfélagið axlaði rekstar- og fjárfestingarlega ábyrgð eru þær hinar sömu og komu frá umræddum verkefnahópi og öll síðasta bæjarstjórn studdi þ.m.t. hann sjálfur.

Hið eina sem vakir fyrir meirihlutanum er að tryggja góðan og glæsilegan rekstur á Skíðasvæðinu og því er miður að fulltrúi D-listans leggist gegn fyrri gjörðum með lýðskrumi. Bæjarfulltrúar meirihlutans gera þá lágmarkskröfu að fulltrúi D-listans í bæjarráði sé samkvæmur sjálfum sér og noti ekki grunnsamfélagsþjónustu til þess að reyna að fella pólitískar smákeilur.

Hvað rekstraráætlun varðar að þá er það ekki rétt hjá bæjarráðsfulltrúanum, Tómasi Atla, að ekki liggi fyrir rekstraráætlun, mannaflaáætlun og heildstætt kostnaðarmat. Slíkt var unnið fyrir núverandi rekstrarár og verður áætlun um reksturinn m.a. byggð á því. Einnig liggur fyrir að fara þarf í viðamiklar viðgerðir á snjótroðurum og óvíst hvenær þeir verði klárir. Með þá óvissu er óráð að ganga til samning við rekstraraðila.
Að endingu skilja fulltrúar meirihlutans ekki hvernig bæjarráðsfulltrúi Tómas Atli getur haldið því fram að meirihlutinn telji umsóknir ófullnægjandi. Meirihlutinn hefur aldrei haldið slíku fram og frábiður sér slíkan málflutning."

Tillaga um að hafna öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins og að sveitarfélagið sjái sjálft um rekstur skíðasvæðisins á komandi vetri samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.



3.Aðgengi að húseignum að Hlíðarvegi 1c-7c Siglufirði

Málsnúmer 2608049Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs vegna aðgengis að íbúðarhúsnæði á Hlíðarvegi 1c - 7c á Siglufirði.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra fyrir minnisblaðið og tillögum til úrbóta sem ganga útá það að gera aðkomu í norður frá Hlíðarvegi og tengja við Hólaveg. Þetta mál hefur í gegnum árin komið reglulega upp hjá sveitarfélaginu þar sem íbúar óska eftir lausnum varðandi aðgengi að fasteignum þeirra. Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.

4.Komur skemmtiferðaskipa og áætlun 2026

Málsnúmer 2601046Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boð frá Cruise Lines International Association á hádegisfund fimmtudaginn 24.september n.k. Um er að ræða hagaðilafund þar sem þingmenn, sveitarstjórnarfólk, hafnarstjórnir og fulltrúar skemmtiferðaskipaiðnaðarins koma saman til að ræða stöðu og framtíð skemmtiferðaþjónustu á Íslandi.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð telur mikilvægt að þiggja boðið og að fulltrúar frá Fjallabyggð mæti á fundinn.
Erindinu vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.

5.Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er varðar 16.gr. laga nr. 551992

Málsnúmer 2509024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá Náttúruhamfaratryggingum þar sem minnt er á áhrif 16.gr. laga nr 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar byggt er á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra falið að koma erindinu áfram innan stjórnsýslunnar skv beiðni NTÍ.

6.Umferðarþing - Ungt fólk og umferðin

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Samgöngustofu þar sem minnt er á að opnað hefur verið fyrir skráningu á Umferðarþing sem haldið verður 22. september n.k. Yfirskrift Umferðarþings 2026 er "Ungt fólk og umferðin".
Vísað til nefndar
Erindinu vísað til næsta fundar Ungmennaráðs.

7.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir fyrstu 8 mánuði ársins 2026. Áfallinn launakostnaður er 88,5% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Haustþing SSNE 2026

Málsnúmer 2607006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur uppfærð dagskrá haustþings SSNE sem haldið verður 9.september n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:45.