Aðgengi að húseignum að Hlíðarvegi 1c-7c Siglufirði

Málsnúmer 2608049

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 931. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs vegna aðgengis að íbúðarhúsnæði á Hlíðarvegi 1c - 7c á Siglufirði.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra fyrir minnisblaðið og tillögum til úrbóta sem ganga útá það að gera aðkomu í norður frá Hlíðarvegi og tengja við Hólaveg. Þetta mál hefur í gegnum árin komið reglulega upp hjá sveitarfélaginu þar sem íbúar óska eftir lausnum varðandi aðgengi að fasteignum þeirra. Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.