Bæjarráð Fjallabyggðar

926. fundur 16. júlí 2026 kl. 08:15 - 09:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 2605060Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar

2.Knatthús í Fjallabyggð

Málsnúmer 2508022Vakta málsnúmer

Fyrir liggja frekari upplýsingar vegna útboðs á framkvæmdum við knatthús. Tilboð voru opnuð þann 5.júní s.l. og voru niðurstöður eftirfarandi:
Kostnaðaráætlun kr. 401.300.000
Atlas kr. 649.814.564
K16 kr. 1.049.624.492
Synjað
Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkir að hafna þeim tilboðum er bárust í verkið á þeim forsendum að bæði tilboð eru verulega yfir kostnaðaráætlun.

Bæjarráð leggur áherslu á að tekið verði samtal við íþróttahreyfinguna nú þegar varðandi framhaldið og með það að markmiði að framfylgja þeirri stefnumótun er samþykkt hefur verið um bætta aðstöðu fyrir íþróttir í Fjallabyggð

3.Kolka, rafrænt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga

Málsnúmer 2607008Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir formlegu samþykki sveitarfélaga fyrir þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga. Fram kemur í minnisblaði að ekki sé gert ráð fyrir neinum kostnaði sveitarfélaga öðrum en þeim skamma tíma sem tekur starfsfólk að tengja skeytamiðlun við Kolku.
Samþykkt
Bæjarráð staðfestir þátttöku Fjallabyggðar í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.

4.Uppsögn á starfi - bæjarverkstjóri

Málsnúmer 2607015Vakta málsnúmer

Bæjarverkstjóri, Birgir Ingimarsson, hefur sagt upp störfum og liggur fyrir uppsagnarbréf dagsett 13.júlí.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð, f.h. Fjallabyggðar, þakkar Birgi fyrir störf hans fyrir sveitarfélagið í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar.

5.Haustþing SSNE 2026

Málsnúmer 2607006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð SSNE á haustþing er haldið verður miðvikudaginn 9.september n.k. í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Kynningarbréf Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 2607010Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kynningarbréf Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir nýja fulltrúa í sveitar - og bæjarstjórnum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Grænbók - stefnumótandi áætlanir í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 2607011Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Innviðaráðuneyti þar sem óskað er upplýsinga vegna stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð stjórnar SSNE frá 84.fundi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:15.