Kolka, rafrænt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga

Málsnúmer 2607008

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 926. fundur - 16.07.2026

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir formlegu samþykki sveitarfélaga fyrir þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga. Fram kemur í minnisblaði að ekki sé gert ráð fyrir neinum kostnaði sveitarfélaga öðrum en þeim skamma tíma sem tekur starfsfólk að tengja skeytamiðlun við Kolku.
Samþykkt
Bæjarráð staðfestir þátttöku Fjallabyggðar í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.