Bæjarráð Fjallabyggðar

915. fundur 09. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Starfsmannamál og verkefni sambýlisins að Lindargötu

Málsnúmer 2602052Vakta málsnúmer

Á fundinn eru mætt Bjarkey O Gunnarsdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, og Hjörtur Hjartarson, deildarstjóri velferðardeildar, til þess að fara yfir hugmyndir um skipan starfsmannamála og verkefna Sambýlisins við Lindargötu í ljósi breyttra aðstæðna.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra og deildarstjóra fyrir yfirferðina. Bæjarráð leggur áherslu á að óvissu er snýr að starfsmönnum Sambýlisins verði eytt eins og kostur er og að framtíðarskipan verkefna liggi fyrir sem fyrst.

2.Holræsahreinsun og götusópun verðkönnun og útboð 2026

Málsnúmer 2602057Vakta málsnúmer

Fyrir liggja niðurstöður úr verðkönnun á gatna - og gangstéttasópun í Fjallabyggð næstu þrjú árin, þ.e. 2026, 2027 og 2028. Fjórir aðilar buðu í verkið, þ.e. Bás ehf, Hreinsitækni, Verkval og Smárinn. Verðtilboð voru eftirfarandi fyrir þriggja ára tímabil þar sem miðað er við eina allsherjar sópun í sveitarfélaginu:
Bás ehf kr. 3.694.320
Smárinn ehf kr. 4.032.000
Verkval ehf kr. 4.315.770
Hreinsitækni kr. 4.920.660


Samþykkt
Í ljósi fyrirliggjandi gagna um verð og tækjabúnað er bæjarstjóra og framkvæmdasviði falið að ganga til viðræðna við Smárann ehf um gatna- og gangstéttasópun í Fjallabyggð þar sem lægstbjóðandi uppfyllir ekki skilyrði verðkönnunar varðandi tækjabúnað að mati framkvæmdasviðs.

3.Uppsögn á starfi - verkefnastjóri

Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur uppsögn Pálma Blængssonar, verkefnastjóra á framkvæmdasviði en Pálmi lætur af störfum um miðjan maí mánuð.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við sviðsstjóra framkvæmdasviðs að auglýsa starf verkefnastjóra.

4.Stefna um opinbera þjónustu

Málsnúmer 2603048Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að stefnu um opinbera þjónustu sem unnin er af fjármála - og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Endurskoðun byggðaáætlunar

Málsnúmer 2510022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð frá SSNE um fund með innviðaráðuneyti og Byggðastofnun um endurskoðun byggðaáætlun. Fundurinn er áætlaður þann 10.apríl.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Ályktun samþykkt á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands 2026

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ályktun frá Skógræktarfélag Íslands þar sem félagið lýsir yfir þungum áhyggjum og mótmælir fyrirhuguðum breytingum á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis þar sem óskað er umsagnar um 568.mál - Stofnun atvinnuveganna. Frestur til að skila inn umsögn er til 15.apríl n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir febrúar 2026. Áfallinn launakostnaður er 95,7% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:15.