Bæjarráð Fjallabyggðar

913. fundur 19. mars 2026 kl. 08:15 - 09:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Knatthús í Fjallabyggð

Málsnúmer 2508022Vakta málsnúmer

Fyrir liggja útboðsgögn og kostnaðaráætlun fyrir knatthús í Fjallabyggð sem unnin eru af Verkís.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdasviði heimild til útboðs á knatthúsi í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

2.Starfsmannamál og verkefni sambýlisins að Lindargötu

Málsnúmer 2602052Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá velferðarsviði vegna starfsmannamála og verkefna sambýlisins að Lindargötu, Siglufirði.
Samþykkt
Bæjarráð þakka sviðsstjóra Velferðarsviðs og deildarstjóra Velferðardeildar fyrir samantektina og staðfestir þá tillögu að skipulagsbreytingum sem fram koma í vinnuskjali, þ.e. að starfsmönnum verði tilkynnt um breytt fyrirkomulag sem felst í því að starfsmenn sambýlisins taki að sér að sinna stuðningsþjónustu við sjálfstæða búsetu, almennri stuðningsþjónustu og skammtímavistun barna og fullorðinna eins og lög um þjónustu við fatlað fólk gerir ráð fyrir. Jafnframt verði starfsemi á sambýlinu við Lindargötu þar sem tveir aðilar eru búsettir.

3.Haf- og strandsvæðaskipulag

Málsnúmer 2502038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Félags - og húsnæðismálaráðuneyti þar sem ráðuneytið óskar eftir sameiginlegri tilnefningu Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð. Óskað er eftir tilnefningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa. Bæjar - og sveitarstjórar á svæðinu hafa fundað vegna tilnefninga í ráðið og greindi bæjarstjóri frá umræðum sem þar fóru fram.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð samþykkir að vísa tilnefningu til afgreiðslu í bæjarstjórn.

4.Ársreikningur Fjallabyggðar 2025

Málsnúmer 2601019Vakta málsnúmer

Fyrir liggja helstu upplýsingar úr uppgjöri ársins 2025.
Lagt fram til kynningar
Ljóst er að niðurstaða ársins 2025 er umtalsvert betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir en ársreikningurinn verður tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðar í dag, 19.mars 2026.

5.Uppsögn á starfi - skólastjóri

Málsnúmer 2603018Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar, Ása Björk Stefánsdóttir, hefur sagt upp störfum frá og með 1.apríl 2026 og mun hún starfa út núverandi skólaár.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Ásu Björk fyrir góð störf á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

6.Ársþing SSNE 2026

Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur dagskrá ársþings SSNE sem fram fer fimmtudaginn 26.mars n.k. í Menningarhúsinu Bergi í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl frá fundum 56 og 57 með framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Skíðasvæði - úttekt vinnueftirlits 2026

Málsnúmer 2603030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur úttekt Vinnueftirlitsins á tækjum og búnaði á skíðasvæðinu í Skarðsdal en engar athugasemdir eru gerðar. Fyrirhuguð er sambærileg úttekt á skíðasvæðinu í Ólafsfirði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð SSNE frá síðasta fundi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir frá nefndum og ráðum Fjallabyggðar til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:30.