Bæjarráð Fjallabyggðar

910. fundur 26. febrúar 2026 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Starfsmannamál og verkefni sambýlisins að Lindargötu

Málsnúmer 2602052Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal deildarstjóra félagsmáladeildar vegna málefna sambýlisins við Lindargötu og starfsemi þess.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Vegna breyttra aðstæðna við rekstur Sambýlisins að Lindargötu á Siglufirði er sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra félagsmáladeildar falið að vinna að endurskipulagningu starfseminnar og störfum starfsmanna í samráði við bæjarstjóra. Auk þess er sama hópi falið að leggja fram tillögur að nýtingu húsnæðisins til lengri tíma og skila til bæjarráðs tillögum fyrir 15. mars 2026.

2.Holræsahreinsun og götusópun verðkönnun og útboð 2026

Málsnúmer 2602057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá bæjarstjóra þar sem óskað er heimildar til þess að aðskilja holræsahreinsun og götusópun í verðkönnun og útboði en verksamningur um báða verkþætti er nú að renna út.
Samþykkt
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til þess að aðskilja götusópun frá holræsahreinsun við næsta útboð holræsahreinsunar á vegum sveitarfélagsins. Bæjarstjóra jafnframt veitt heimild til þess að framkvæma verðkönnun á götusópun.

3.Þjónustusamningur vegna náttúrugripasafns 2026

Málsnúmer 2602049Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að þjónustusamningi við Pálshús vegna varðveislu náttúrugripasafns næstu þrjú ár líkt og verið hefur undanfarin ár.

Helgi Jóhannsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir þjónustusamning við Fjallasali ses/Pálshús um varðveislu, viðhald og aðgengi að náttúrugripasafni fyrir árin 2026, 2027 og 2028.

4.Umsókn um styrk eða framlag 2026

Málsnúmer 2602051Vakta málsnúmer

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi umsókn Skíðafélags Ólafsfjarðar um styrk eða framlag úr bæjarsjóði til uppsetninga á húsakosti við svokallaðan Jóns lund/Nonna lund.
Styrkveiting til verkefnisins var samþykkt áður í bæjarráði í desember 2024 en ekki var framkvæmt á árinu 2025 fyrir andvirði þess styrks.

Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr 1.400.000 líkt og áður var samþykkt árið 2024. Bæjarráð minnir vinsamlegast á að samþykktur fjárstuðningur til tiltekinna verkefna færist ekki sjálfkrafa á milli fjárhagsára náist ekki að framkvæma viðkomandi verkefni. Styrkveitingin rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins 2026 fyrir æskulýðs- og íþróttamál.

5.Víkingurinn 2026

Málsnúmer 2602053Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá félagi Kraftamanna þar sem óskað er eftir þátttöku Fjallabyggðar í Víkingnum 2026 sem er aflraunakeppni sem áætlað er að fari fram í 4 sveitarfélögum í ár. Óskað er eftir gistingu og fullu fæði fyrir þátttakendur auk fjárstyrks að upphæð kr. 250.000
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi Víkingsins og lýsa yfir áhuga á að Víkingurinn 2026 fari fram í Fjallabyggð.

6.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl vegna stöðufunda 54 og 55 hjá framkvæmdasviði
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:00.