Bæjarráð Fjallabyggðar

684. fundur 16. febrúar 2021 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2101051Vakta málsnúmer

Niðurstaða bæjarráðs færð í trúnaðarbók.

2.Þjónustusamningur vegna náttúrugripasafns

Málsnúmer 2101053Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að rekstrar- og þjónustusamningi um varðveislu, viðhald og aðgengi að náttúrugripasafni við Fjallasali ses. 2021-2022 ásamt vinnuskjali deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála, dags. 12.02.2021.

Bæjarráð samþykkir drögin og leggur til að styrkur til reksturs safnsins verði kr. 800.000 og þjónustugjald vegna náttúrugripasafns verði kr. 800.000.
Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

3.Samstarfssamningur um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku 2021

Málsnúmer 2010074Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samstarfssamningi Fjallabyggðar og Golfklúbbs Fjallabyggðar um rekstur golfvallarins í Skeggjabrekku, 2021, ásamt vinnuskjali deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála, dags. 06.11.2020 og bókun 675. fundar bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra tæknideildar að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

4.Opið fyrir umsóknir um stofnframlög ríkisins

Málsnúmer 2102032Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), dags. 04.02.2021 þar sem fram kemur að opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög ríkisins.
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2021.

5.Aðgengi bíla við Grunnskólann við Tjarnarstíg

Málsnúmer 2102034Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Erlu Gunnlaugsdóttur, skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar, dags. 07.02.2021 er varðar fyrirspurn varðandi aðgengi bíla að skólahúsi grunnskólans við Tjarnarstíg og bílastæðum.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar.

6.Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum.

Málsnúmer 2102042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, dags. 02.02.2021 vegna samstarfs Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum.

Rætt um nýútkomna skýrslu utanríkisráðuneytis, Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum, og tækifæri sem í samstarfinu kunna að felast fyrir Akureyrarbæ. Skýrsluna er að finna á eftirfarandi slóð:
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/01/21/Samstarf-Graenlands-og-Islands-a-nyjum-Nordurslodum/

„Bæjarstjórn leggur ríka áherslu á að hlutverk bæjarins sem miðstöðvar norðurslóðastarfs verði eflt til muna og byggt á þeim góða grunni sem fyrir er. Að mati bæjarstjórnar getur Akureyrarbær í samstarfi við stofnanir á Norðurlandi leikið lykilhlutverk í auknu og víðtækara samstarfi Íslands og Grænlands þjóðunum báðum til heilla. Allir nauðsynlegir innviðir eru til staðar á Norðurlandi og Akureyri er miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi sem gerir svæðið mjög vel í stakk búið til að takast á við krefjandi og metnaðarfull verkefni.“

Bæjarráð samþykkir að taka undir bókun bæjarstjórnar Akureyrarbæjar.

7.Áfangastaðaáætlun-2021-2023

Málsnúmer 2102037Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar Áfangastaðaáætlun Norðurlands - Okkar áfangastaður 2021-2023.

8.Útboð stoðvirkja í Siglufirði 4. áfangi

Málsnúmer 2102038Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Framkvæmdasýslu ríkisins, dags. 05.02.2021 þar sem fram kemur að útboð í 4. áfanga ofanflóðavarna í Hafnarfjalli er hafið.
Útboð verða opnuð 5. mars nk.

Þá er óskað eftir aðstöðu á flugvellinum á Siglufirði vegna framkvæmdanna líkt og áður hefur verið.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram.

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2021

Málsnúmer 2101002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 24. fundar skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga frá 12.02.2021.

Fundi slitið - kl. 09:00.