Samstarfssamningur um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku 2021

Málsnúmer 2010074

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17.11.2020

Lagður fram gildandi samstarfssamningur við Golfklúbb Fjallabyggðar um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku sem rennur út um áramót.

Einnig lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála dags. 06.11.2020 ásamt yfirliti yfir rekstarliði.

Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu. Umræða um samstarfssamninga vegna reksturs íþróttamannvirkja Fjallabyggðar verður tekin síðar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 684. fundur - 16.02.2021

Lögð fram drög að samstarfssamningi Fjallabyggðar og Golfklúbbs Fjallabyggðar um rekstur golfvallarins í Skeggjabrekku, 2021, ásamt vinnuskjali deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála, dags. 06.11.2020 og bókun 675. fundar bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra tæknideildar að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.