Bæjarráð Fjallabyggðar

539. fundur 23. janúar 2018 kl. 12:00 - 13:10 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Helga Helgadóttir varamaður, D lista
  • Valur Þór Hilmarsson varamaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Málefni Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Málsnúmer 1504010Vakta málsnúmer

Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands afboðaði sig á fund bæjarráðs vegna veðurs. Óskað hefur verið eftir því að hann mæti á fund bæjarráðs við fyrsta tækifæri.

2.Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2024, breyting

Málsnúmer 1801053Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skipulagslýsing vegna breytinga á svæðisskipulagi Eyjafjarðar vegna flutningslína raforku, Blöndulínu 3 og Hólasandslínu 3, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

3.Persónuvernd skref fyrir skref

Málsnúmer 1801055Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna nýrra persónuverndarlaga. Í skjalinu er að finna leiðbeiningar um það hvernig sveitarfélög geta innleitt nýtt verklag. Einnig hefur tveimur sérfræðingahópum verið komið á fót sem sveitarfélög geta leitað til við undirbúninginn.

4.Umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga - Hafnarkaffi

Málsnúmer 1707025Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra vegna umsóknar Hafnarkaffis um rekstrarleyfi til veitingu veitinga.
Bæjarráð tók erindið upphaflega fyrir á 509. fundi sínum þann 11. júlí 2017 og taldi þá fyrirliggjandi gögn er varða opnunartíma og flokkun ekki nægjanleg og óskaði eftir ýtarlegri upplýsingum.
Þar sem að þær upplýsingar hafa ekki borist sér bæjarráð sér ekki fært að veita umsókninni jákvæða umsögn.

5.Ábendingar um hvernig hægt sé að verjast spillingu í opinberum innkaupum

Málsnúmer 1801051Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um skýrslu Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins á haustfundi þess árið 2017, þar sem fram koma ábendingar um hvernig hægt er að verjast spillingu í opinberum innkaupum.

6.Skákdagurinn - áskorun til sveitarfélaga

Málsnúmer 1801054Vakta málsnúmer

Þann 26. janúar n.k. verður Skákdagur Íslands haldinn um land allt. Skákdagurinn er haldinn á fæðingardegi Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga.
Skáksambandið vonar að sem flest sveitarfélög taki þátt í Skákdegi Íslands.

Lagt fram til kynningar.

7.Ráðgjöf og kennsla - Íbúar ses

Málsnúmer 1801059Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar kynningartilboð frá Íbúum ses., sem vinnur að því að auka borgaralega þátttöku og hannar og þróar opinn hugbúnað fyrir samráðsferla og samráðslýðræði.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

8.Ársfundur Náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar

Málsnúmer 1710034Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt frá 20. ársfundi Umhverfisstofnunar, náttúruvernda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa sem haldinn var á Akureyri þann 8. nóvember 2017.

9.Lífshlaupið - landskepppni í hreyfingu

Málsnúmer 1801063Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands þar sem vakin er athygli á Lífshlaupinu - landskeppni í hreyfingu sem hefst 31. janúar n.k. Óskað er eftir liðsinni sveitarfélagsins við að vekja athygli á Lífshlaupinu og hvetja vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga til þátttöku.

Bæjarráð hvetur íbúa Fjallabyggðar til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og felur markaðs- og menningarfulltrúa að auglýsa Lífshlaupið á heimasíðu Fjallabyggðar.

Fundi slitið - kl. 13:10.