Bæjarráð Fjallabyggðar

537. fundur 09. janúar 2018 kl. 12:00 - 12:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Ólafur Guðmundur Guðbrandsson varaáheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Samningur um sálfræðiþjónustu

Málsnúmer 1711005Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

Lögð fram drög að samningi milli Fjallabyggðar annars vegar og Hjalta Jónssonar sálfræðings og Jóns Viðars Viðarssonar sálfræðings hins vegar um sálfræðiþjónustu við félagsþjónustu Fjallabyggðar og leik- og grunnskóla Fjallabyggðar. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2018 til og með 15. júní 2018.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að undirrita samninginn.

2.Bókhaldsleg meðferð uppgjörs lífeyrisskuldbindinga í A-deild Brúar og umfjöllun um opinber fjármál

Málsnúmer 1705073Vakta málsnúmer

Lögð fram drög lífeyrissjóðsins Brúar að uppgjöri lífeyrisskuldbindinga Fjallabyggðar vegna breytinga á A-deild Brúar.

Endanleg upphæð verður lögð fram á næsta fundi bæjarráðs.

Bæjarráð lýsir furðu sinni á skömmum afgreiðslufresti Brúar lífeyrissjóðs en uppgjörið skal vera lokið eigi síðar en 31. janúar 2018.

3.Slit á Seyru

Málsnúmer 1801020Vakta málsnúmer

Þann 12. janúar n.k. verður haldinn tvöfaldur hluthafafundur í Seyru ehf, þar sem áætlað er að félaginu verði slitið. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að félaginu verði slitið.
Fulltrúi Fjallabyggðar í stjórn Seyru er S. Guðrún Hauksdóttir.

4.Til umsagnar 11. mál frá nefndasviði Alþingis - Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignasjóður)

Málsnúmer 1801003Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignasjóður), 11. mál.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:45.