Bæjarráð Fjallabyggðar

536. fundur 29. desember 2017 kl. 12:00 - 13:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Viðauki við fjárhagsáætlun 2017

Málsnúmer 1701079Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2017 vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hornbrekku, tilfærslu á fé vegna framkvæmda á milli áranna 2017 og 2018 og leiðréttingu á milli liða.

Bæjarráð samþykkir að vísa viðauka 3 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl:

2.Staðgreiðsla tímabils - 2017

Málsnúmer 1704084Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir staðgreiðslu útsvars á tímabilinu 1. janúar til 21. desember 2017. Innborganir nema 1.001.138.562 kr. sem er 87,98% af tímabilsáætlun sem gerði ráð fyrir 1.070.000.000 kr.

3.Laugarvegur 39 - íbúð 101

Málsnúmer 1712036Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að selja íbúð 101 að Laugarvegi 39, Siglufirði og felur deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála að ganga frá uppsögn á gildandi leigusamningi. Jafnframt samþykkir bæjarráð að bjóða núverandi leigjanda forkaupsrétt að fasteigninni.

4.Samstarfssamningur um heilbrigðiseftirlit

Málsnúmer 1712041Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samstarfssamningi um skipan heilbrigðisnefndar og rekstur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Aðilar að samstarfssamningnum eru auk Fjallabyggðar: Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagaströnd, Skagabyggð, Skagafjörður og Akrahreppur.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með fyrirvara um samningstíma og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Fréttaumfjöllun liðandi árs - skýrsla

Málsnúmer 1712032Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Atla Sævarssyni, fh. Creditinfo, þar sem Fjallabyggð er boðið að kaupa fjölmiðlaskýrslu, þar sem fram koma upplýsingar um fréttaumfjallanir um sveitarfélagið á árinu 2017.

Bæjarráð hafnar tilboðinu.

6.Drög að frumvarpi um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Málsnúmer 1712015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um drög að frumvarpi um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Einnig lögð fram til kynningar bókun úr fundargerð 2416. fundar bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar sem send var Fjallabyggð þann 11. desember sl.
Þar tekur ráðið undir afstöðu sambandsins „um nauðsyn þess að árlegar fjárheimildir Ofanflóðasjóðs verði hækkaðar með hliðsjón af þeim verkefnum sem bíða aðkomu sjóðsins. Jafnframt vill bæjarráð (Seyðisfjarðarkaupstaðar) koma á framfæri því sjónarmiði að tekjum Ofanflóðasjóðs verði áfram haldið aðgreindum sem mörkuðum tekjum sem væntanlega leggjast af þegar verkefnum við ofanflóðavarnir verður lokið."

Bæjarráð tekur undir bæði umsögn sambandsins og bókun bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar um mikilvægi þess að Ofanflóðasjóði séu veittar nægar fjárheimildir til þess að hann geti sinnt hlutverki sínu sem skyldi.

7.Ljósleiðari í Fjallabyggð, samstarfssamningur

Málsnúmer 1712034Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Ármann V. Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar.

Tekin fyrir drög að samstarfssamningi milli Fjallabyggðar og Tengis hf. um styrkveitingu til uppbyggingu ljósleiðaranets í dreifbýli. Í nóvember sl. var tilkynnt að Fjallabyggð hefði fengið styrk úr verkefninu Ísland ljóstengt og samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun mun Fjallabyggð greiða 3.500.000 kr. til verkefnisins á árinu 2018.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur staðgengli bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Fjallabyggðar.

8.Til umsagnar - 40. mál frá nefndasviði Alþingis - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur).

Málsnúmer 1712043Vakta málsnúmer

Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur), 40. mál.

Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir stjórnar Eyþings 2017

Málsnúmer 1701008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 301. fundar stjórnar Eyþings sem haldinn var 13. desember 2017.

10.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra

Málsnúmer 1701010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð fundar stjórnar Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra sem haldinn var 20. desember 2017.

11.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 108. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 17. desember 2017.

Fundi slitið - kl. 13:00.