Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála

Málsnúmer 1908063

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 57. fundur - 02.10.2019

Farið yfir drög að nýjum reglum um úthlutun menningarstyrkja í Fjallabyggð. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 67. fundur - 02.09.2020

Markaðs- og menningarnefnd fór yfir reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála og leggur til nokkrar breytingar á reglunum. Nefndin vísar reglunum með áorðnum breytingum til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 666. fundur - 08.09.2020

Lögð fram drög að endurskoðuðum Reglum Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála ásamt bókun 67. fundar Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir drögin með áorðnum breytingum.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 78. fundur - 02.09.2021

Markaðs- og menningarnefnd fór yfir gildandi reglur um úthlutun styrkja til menningarmála.
Nefndin leggur til ákveðnar breytingar á reglunum og felur markaðs- og menningarfulltrúa ásamt deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að uppfæra þær í samræmi við ákvörðun fundarins. Reglum með áorðnum breytingum verður síðan vísað til umfjöllunar í bæjarráði.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 711. fundur - 30.09.2021

Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála ásamt bókun 78. fundar Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar dags. 2. september 2021.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir drögin með áorðnum breytingum og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 84. fundur - 15.02.2022

Markaðs- og menningarnefnd endurskoðar reglur um menningarstyrki.
Vísað til umsagnar og afgreiðslu bæjarráðs
Markaðs- og menningarnefnd leggur til breytingar á reglum um úthlutun menningartengdra styrkja og vísar breytingum til umfjöllunar í bæjarráði.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 731. fundur - 24.02.2022

Lögð fram drög að breyttum reglum Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála ásamt bókun markaðs- og menningarnefndar frá 84. fundi nefndarinnar þar sem nefndin leggur til breytingar.
Vísað til Bæjarstjórnar
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að breyttum reglum um úthlutun styrkja til menningarmála og vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykktar eða synjunar.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 94. fundur - 05.01.2023

Markaðs- og menningarnefnd endurskoðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála m.t.t. hugsanlegra breytinga fyrir árið 2024.
Afgreiðslu frestað
Markaðs- og menningarnefnd rýndi reglurnar og frestar afgreiðslu þeirra til næsta fundar.