Gjaldskrár 2014

Málsnúmer 1401116

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 5. fundur - 03.02.2014

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar eiga gjaldskrár sveitarfélagsins ekki að hækka að svo stöddu.
Að ósk forstöðumanna á menningarsviði þurfa nýir gjaldskrárliðir að bætast við 2014.

Markaðs- menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá 2014 fyrir Menningarhúsið Tjarnarborg, að viðbættum nýjum gjaldskrárliðum:


1.       Dansleikur                                             64.900
fyrir utan stefgjöld (fer eftir gestafjölda)
2.       Tónleikar og dansleikur                             86.600 fyrir utan stefgjöld
3.       *Tónleikar og leiksýningar                         25.000
fyrir utan stefgjöld (m.v. allt að 4 klst.) athuga að æfingar innfaldar í gjaldi eru ca. tveir klukkutímar fyrir viðburð, ef umfram þá er greitt samkvæmt klukkutíma kr. 1.000 á tímann.
4.       Fermingar báðir salir                                 32.500
5.       Neðri salur                                              21.600
6.       Efri salur                                                 10.800
7.       Tónleikar (Skólarnir) 2 klst.                        13.000
8.       *Viðburðir á vegum skóla                           14.000  
miðað er við allt að 4 klukkustundir.
9.       Fundur efri salur                                         6.000  
miðað er við allt að 4 klukkustundir.
10.   Fundur neðri salur                                        12.500  
miðað er við allt að 4 klukkustundir.
11.   *Skjávarpi                                                    6.000
12.   *Leiga á dúkum                                               250
13.   *Ættarmót                                                  98.000  
miðað við föstudag til sunnudag (sérsamn. um þrif ef þess þarf).
14.   *Rafmagn                                                          
Rafmagnsala er samkvæmt taxta rafveitna, m. 20% álagi.
15.   *Myndlistarsýningar                                    
Fer eftir gjaldalið 8 og 9 nema þegar sýnt er á vegum
menningarhússins.
16.   *Sérstök þrif v. hefðbundinna viðburða       12.500
17.   *Ef óskað er eftir TB matar og kaffistellinu,
þá er gerður samningur og leiga greidd, kr. 100 á mann.
18.   *Ef eldhús er notað, þá er þrifið eftir ákvæði í leigusamningi, sérstaklega er tekið fram að hvíta matarstellið sé notað.
19.   *Matarstell Tjarnarborgar (TB) er ekki leigt út nema við sérstaka atburði, samningur er gerður sérstaklega við viðkomandi leiguaðila.
20.   *Þegar viðburðir eru haldnir á vegum menningarhússins, er gert sérstakt samkomulag vegna stefgjalda.
21.   *Gera skal samning við leigutaka um afmæli, ættarmót, fermingar, brúðkaup og ofl. þar sem tilgreint sé um tímasetningar, verð og frágang.  Leigutaki skal greiða tryggingarupphæð til staðfestingar viðburðarpöntun, sem dregst frá endanlegu gjaldi.
Tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef leigutaki hættir við þegar þrír mánuðir eða skemmri tími eru í umsaminn viðburð. Ekki er leyfilegt að gista í húsinu og engin viðvera er leyfð eftir kl. 01.00 eftir miðnætti, nema samkvæmt sérstöku samkomulagi.
22.   *Viðburðir sem styrktir eru af sveitarfélaginu.
Gera skal samning við aðila sem styrktir eru af sveitarfélaginu t.d. Blús hátíð, Berjadaga, 17 júní, sjómannadaginn, jólahald og leiksýningar með hliðsjón af gjaldskrá.

* Nýir liðir í gjaldskrá


Markaðs- menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá 2014 fyrir bóka- og hérðaðsskjalasafn að viðbættum nýjum gjaldskrárliðum:

Árgjald: Börn og ungingar (0 - 17 ára) 0 kr.
Skírteini fyrir fullorðna (18 - 66) 2.000 kr.
Skírteini fyrir ellilífeyrisþega (67 ára og eldri) og öryrkja 0 kr. Skammtímaskírteini (gildistími 1 mánuður) 1.000 kr.
*Nýtt skírteini, ef skírteini eyðileggst eða glatast 500 kr.
*Leigutekjur:
*Kvikmyndir DVD 300 kr.
*Kvikmyndir DVD, barnaefni 150 kr.
*Kvikmyndir DVD, fræðsluefni 0 kr.
*Myndbönd 0 kr.

Dagsektir:
Dagsektir fyrir hvert eintak 25 kr.
*Hámarkssektir:
*Hámarkssektir á eintak / safngagn 600 kr.
*Hámarkssektir á einstakling (hvert skipti) 5.000 kr.
Annað:
Frátektir / pantanir, hvert eintak / safngagn 50 kr.
Millisafnalán (greiðist fyrirfram) 600 kr.
*Plöstun kortastærð 250 kr.
*Plöstun A5 / A4 / A3 300 / 400 / 500 kr.
Prentun / ljósritun, stærð A4 svart/hvítt 30 kr.
*Prentun / ljósritun, stærð A4 litur 60 kr.
*Taupoki 1.000 kr.
*Lestrardagbók 400 kr. Internet: 30 mínútur 100 kr. Aðgangur að þráðlausu neti (wi-fi) 0 kr. Handhafar bókasafnsskírteinis hafa aðgang að tölvu í 30 mínútur á dag, án gjalds.
*Glatað eða skemmt safngagn:
*Fyrir týnt eða skemmt eintak / safngagn skal lánþegi greiða skaðabætur, auk dagsekta ef þær eru til staðar.
*Lágmarks viðmiðunargjald:
*Bækur og hljóðbækur 3.000 kr.
*DVD-diskar, geisladiskar, myndbönd 2.500 kr.
*Tímarit 1.000 kr.
*Heimilt er að útvega bókasafninu sömu útgáfu af eintaki / safngagni en ávallt skal greiða dagsektir ef þær eru til staðar.
*Ef um ný gögn er að ræða (innan við tveggja ára) gildir innkaupsverð.
*Ef safnefni er ekki skilað þrátt fyrir ítrekaðar innheimtutilraunir telst safnefnið glatað og skal viðkomandi lánþegi þá bæta bókasafninu skaðann.

* Nýir gjaldskrárliðir

Bæjarráð Fjallabyggðar - 331. fundur - 04.02.2014

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskrár ársins 2014, sem eru bundnar vísitölu, verði óbreyttar á árinu og miðist við vísitölu í lok árs 2013.

Gjaldskrár verða teknar til endurskoðunar ef verðlagsforsendur við gerð áætlunar fyrir árið 2014 ganga ekki eftir.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 6. fundur - 17.03.2014

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar eiga gjaldskrár sveitarfélagsins ekki að hækka að svo stöddu.

Markaðs- menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá 2014 fyrir Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði.

Fullorðnir: 550 kr.
Ókeypis fyrir börn yngri en 16 ára í fylgd foreldra.
Ellilífeyrisþegar, öryrkjar og ungmenni 16 - 20 ára: 450 kr.
*Aðgangseyrir fyrir hópa (10 eða fleiri): 400 kr.
*Skólahópar (utan Fjallabyggðar): 200 kr.

Markaðs- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá 2014 fyrir tjaldsvæði:
Tjaldstæði Siglufirði

Verð: Gistinótt pr. einstakling: 800 kr.

Sama gjald á tjöld og vagna.

Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 600 kr. gistinótt per. mann
*Gistináttagjald: 100 kr. pr. gistieiningu.

Frítt fyrir börn undir 12 ára

Rafmagn: 400 kr. nóttin.

Hægt er að þvo og þurrka þvott á tjaldstæðinu, það kostar 500 kr.

Tjaldstæði Ólafsfirði

Verð: Gistinótt pr. einstakling: 800 kr.

Sama gjald á tjöld og vagna.

Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 600 kr. gistinótt per. mann
*Gistináttagjald: 100 kr. pr. gistieiningu.

Frítt fyrir börn undir 12 ára

Rafmagn: 400 kr. nóttin.

Hægt er að þvo og þurrka þvott í íþróttamiðstöðinni, það kostar 500 kr.

* Nýir liðir í gjaldskrá

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18.03.2014

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar eiga gjaldskrár sveitarfélagsins ekki að hækka að svo stöddu.

Gjaldskrá Íþróttamiðstöðar Fjallabyggðar fyrir árið 2014 er eftirfarandi:

Sund fullorðnir:      

Stakt gjald                               600

10 miða kort                        4.500

30 miða kort                      10.000

Árskort                               16.000

Hjónakort                           27.000

Sund börn                          10 - 15 ára

Stakt gjald                               300

10 miða kort                        2.000

30 miða kort                        3.500

Árskort                                 4.000

67 ára og eldri og öryrkjar borga barnagjald í sund:

Sundföt                                   600

Handklæði                              600

Sturta                                      600

Tækjasalur:                                                       Skóli,-60 ára og eldri  og öryrkjar

Stakt gjald                            1.200                     1.000

1.mán kort                           7.000                     6.000

3.mán. kort                        16.000                   13.000

6.mán. kort.                      25.000                    20.000

Árskort                              37.000                    25.000

Hjónakort                          60.000

20 stk. klippikort               16.000

Eldri borgarar (60+) og öryrkjar borga sama gjald og nemendur í Fjallabyggð í ræktina.

Íþróttasalur:

1/1 salur                             6.000

½ salur                                3.500

Tennis                                 3.500

Blakvöllur                           2.800

Badmintonvöllur               1.800

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 55. fundur - 07.04.2014

Hafnarstjórn samþykkir óbreyttar gjaldskrá fyrir árið 2014.

GJALDSKRÁ FYRIR HAFNARSJÓÐ FJALLABYGGÐAR 2013 og 2014.

I. KAFLI.
Almenn ákvæði.

1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1. Gjaldskráin er við það miðuð að Hafnarsjóður Fjallabyggðar geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna sbr. 3. gr. 5. tölulið hafnalaga.

II. KAFLI.
Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Skipagjöld.

4. gr.

Lestargjöld:

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 12,00 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld:

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 6,02 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið, þó að hámarki 13 sinnum í mánuði.

Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald sem er kr. 74,07 á mælieiningu mánuði. Þó gilda eftirfarandi lágmörk:

Bátar undir 10 brt. kr 5.235
Bátar 10-20 brt. kr 5.627,-
Bátar yfir 20 brt. kr. 8.428,-
(Farþegabátar hvalaskoðunar og sjóstangveiðibátar yfir 20 tonn greiði tvöfalt viðlegugjald)

( Þau skip og bátar sem ekki greiða aflagjald í 6 mánuði samfellt greiði tvöfalt viðlegugjald)

Einnig er heimilt að innheimta bryggjugjöld sem daggjöld af smærri bátum fyrir allt að 10 dögum:

Smábátar undir 10 brt. kr. 393 á dag.
Smábátar 10-20 brt. kr. 523 á dag.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju N á Siglufirði pr. ár kr. 91.590,-.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju N á Siglufirði pr. 3 mán. kr. 32.710,-.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju S á Siglufirði pr. ár kr. 65.419,-.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju S á Siglufirði pr. 3 mán. kr. 26.170,-.
Viðlegugjald við flotbryggju án fasts báss á mánuði kr. 6.675,-.
Legufæragjald á ári kr. 14.847
Afsláttur ellilífeyrisþega af legufæragjaldi 20%.
Uppsátursgjald kr. 1.636,-.

Vörugjöld.

5. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

6. gr.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

7. gr.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.
Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.

8. gr.

Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:
a) Umbúðir sem endursendar eru.
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

9. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta hafnarstarfsmönnum í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarvörðum ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast.

Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

10. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

1. fl.: Gjald kr. 244,33 fyrir hvert tonn:

Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu, sjávarafurðir.

2. fl.: Gjald kr. 409,34 fyrir hvert tonn:

Lýsi og fiskimjöl.

3. fl.: Gjald kr 509,53 fyrir hvert tonn:

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda.

Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

4. fl.: Gjald kr. 1037,74,- fyrir hvert tonn:

Allar vörur sem ekki eru tilgreindar í 8. grein og í 1. - 3. flokki.

5. fl.: Aflagjald; 1,6% af vergu aflaverðmæti.

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða  brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum.

Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Gjald af fullunnum frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis aflans. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.

Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr.laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð verðlagsstofu skiptaverðs. Heimilt er að semja sérstaklega við stórnotendur. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.

Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 150,31

Leiga á gámasvæði, geymsla veiðarfæra.

11. gr.

Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi (gáma og báta):
Geymsla á malarsvæði pr. m2 kr 48,-.
Geymsla á malbikuðu svæði pr. m2 kr 59,-.
Geymsla á veiðarfærum og öðrum búnaði eða bátum á hafnarköntum er gjaldfrjáls í 5 daga. Þá greiðast kr. 2.390,- á hvern hafinn sólarhring.
Geymsla er aðeins heimil með leyfi hafnavarða.

Sorphirða.

12. gr.
Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti kr. 1.522,-.
Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti (sérlosun) kr. 8.008,-.
Sorphirðugjald frístundabáta á mánuði kr. 264,-.
Sorphirðugjald atvinnubáta undir 20 brt. á mánuði kr. 1.522,-.
Sorphirðugjald atvinnubáta 20-100 brt. kr. 2.675,-.
Sorphirðugjald skipa yfir 100 brt. pr. mán. kr. 4.005,-.

Hafnsögugjöld.

13. gr.

Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

a) Fyrir leiðsögu til hafnarinnar kr. 30.368,- fyrir hvert skip, auk kr 6,45,- fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu frá höfninni greiðist sama gjald.

b) Fari hafnsögumaður um borð í skip utan hafnarmarka greiðist aukalega kr. 20.243,-

Festargjöld.

14. gr.

Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu þar sem starfsmaður hafnarinnar tekur á móti skipi á dagvinnutíma greiðist kr. 8.780,- á hvern mann. Hafnarverðir meta mönnunarþörf ef óskað er eftir afgreiðslu.

Fyrir hverja afgreiðslu utan dagvinnutíma greiðist kr. 12.598.- Sé fleiri en einn maður notaður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann kr. 12.598,-.

Á stórhátíðum er festargjald 16.798,- fyrir hvern mann.

Vatnssala.

15. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju:
Kalt vatn til smábáta er innifalið í viðlegugjaldi.
Kalt vatn kr/m3 til fiskiskipa yfir 30 brt. 226,-.
Kalt vatn kr/m3 til fragtskipa kr. 226,-.
Lágmarksgjald miðast við 10 tonn.

Vigtargjald.

16. gr.
Grunngjald fyrir vigtun er kr. 1.190,- vigtun og kranagjald eru innifalin ef afli er undir 1 tonni.

Almenn vigtun kr. kr. 132 á tonn.
Úrtaksgjald á tonn sem ekki er vigtað kr. 78,- á tonn.
Stakir bílar kr. 1.428,-.
Gjald fyrir yfirvinnu við vigtun er kr. 4.885,- á klst. á hvern mann. Lágmarksútkall er 2 klst.

Löndunarkranagjald

17. gr.

Löndun með hafnarkrana kr. 270 pr. tonn. Kranagjald er innifalið í vigtunargjaldi ef aflinn er undir 1 tonni.

Rafmagnssala.

18.gr

Gámar 40 fet á sólarhring kr. 1.683,- eða samkvæmt mæli.
Gámar 20 fet á sólarhring kr. 1.683,- eða samkvæmt mæli.
Rafmagnsverð til skipa er samkvæmt taxta rafveitna, með 20% álagi. (14,71 kr. Pr. Kwst)
Fari tenging fram á dagvinnutíma kr. 3.338,-.
Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald kr. 6.677,-.
Fyrir leigu á rafmagnsmæli greiðist kr. 312- á sólarhring.
Rafmagnsgjöld geta tekið breytingum án fyrirvara vegna gjaldskrárbreytinga birgja hafnarinnar hverju sinni.

Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða.

19.gr.

Öryggisgjald greiðist 1 sinni í mánuði óháð komufjölda kr 33.313,-.
Öryggisgjald pr. öryggisvörð í dagvinnu kr. 3.442,- á klst.
Öryggisgjald pr. öryggisvörð í yfirvinnu kr. 6.025- á klst.

Opnunartími Hafnavoga.

20.gr.

Hafnarvogin Siglufirði er opin:

A) Á tímabilinu 01.09 - 30.04 frá kl 08:00- 18:00 virka daga og frá 16:00-18:00 á laugardögum.
B) Á tímabilinu 01.05-31.08 frá kl 08:00-21:00 virka daga og frá 16:00-18:00 á laugardögum.

Hafnarvogin Ólafsfirði er opin:

A) Á tímabilinu 01.09 - 30.04 frá kl 08:00- 17:00 virka daga.
B) Á tímabilinu 01.05-31.08 frá kl 08:00-18:00 virka daga og frá 16:00-18:00 á laugardögum.

Opnunartími hafnarvoga á grásleppuvertíð er frá kl 08:00_18:00 virka daga og laugardaga frá kl 15:00-18:00

Fyrir þjónustu hafnarvarða utan opnunartíma og eftir kl. 19:00 á tímabili B greiðist yfirvinna.

III. KAFLI.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

21. gr.

Skrifstofa Fjallabyggðar sér um innheimtu gjalda skv. gjaldskrá þessari og hefur heimild til að leggja á innheimtugjald kr. 150.

Hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga reiknast dráttarvextir af gjaldfallinni fjárhæð frá gjalddaga skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

22. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Fjallabyggðar vegna skipsins. Skipstjóra er skylt við komu til hafnar að gefa starfsmönnum viðkomandi hafnar upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál. Hann skal einnig afhenda þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef þess er krafist vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra. Hafnarsjóður hefur haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni. Skipstjóri getur ekki vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

23. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið.

Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

24. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. Hafnalaga nr. 61/2003. Hafnarsjóði Fjallabyggðar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

25. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Fjallabyggðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3.tl. 3.gr. laga nr.50/1998 um virðisaukaskatt.

IV. KAFLI.

Gildistaka.

26. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar er samþykkt af hafnarstjórn þann 29. október 2012, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af bæjarstjórn þann 12 desember 2012.

Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2013 og er til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.