Fréttir

Fundur um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði

Fundur um Náttúrugripasafnið í ÓlafsfirðiMenningarnefnd Fjallabyggðar boðar áhugafólk um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði til fundar í Tjarnarborg miðvikudaginn 23. maí kl. 17.00.Þar verða málefni safnsins rædd m.a. hugmyndir varðandi rekstur safnsins.Menningarnefnd
Lesa meira

Bæjarskrifstofurnar - lokun í dag eftir hádegi

Bæjarskrifstofan Siglufirði verður lokuð í dag 15. maí frá kl. 13:00, og bæjarskrifstofan Ólafsfirði frá kl. 14:00vegna starfsmannafundar í Ólafsfirði.Skrifstofustjóri
Lesa meira

Kynning á tillögum að skipuriti

Kynning á tillögum sameiningarnefndar Fjallabyggðar að nýju skipuriti fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins verða kynntar starfsmönnum stjórnsýslunnar þriðjudaginn 15. maí n.k.
Lesa meira

Kjörfundur

KJÖRFUNDUR VEGNA ALÞINGISKOSNINGA 2007Við kosningar til Alþingis laugardaginn 12. maí 2007er skipting í kjördeildir í Fjallabyggð sem hér segir:Í kjördeild I í Gagnfræðaskólanum í Ólafsfirði kjósa íbúar Ólafsfjarðar.Kjörfundur hefst kl. 10:00.Í kjördeild II í Ráðhúsi Siglufjarðar, 2. hæð kjósa íbúar Siglufjarðar.Kjörfundur hefst kl. 10:00.Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 sbr. 89. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum sé þess óskað.Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar
Lesa meira

Vinnuskóli Fjallabyggðar

Vinnuskóli Fjallabyggðar auglýsir:Skráning nemenda á Siglufirði stendur nú yfir. Nemendur skulu skrá sig til vinnu Ráðhúsinu eigi síðar en 8. maí nk. (einnig er hægt að skrá sig í félagsmiðstöðinni/skólanum hjá Sigmundi)Rétt til vinnu í Vinnuskólanum hafa unglingar fæddir 1991, 1992 og 1993.Áætlaður vinnutími er á tímabilinu 11. júní til 17. ágúst. Ekki er þó hægt að raða niður tímasetningum eða ganga frá fjölda vinnuvikna fyrr en við sjáum hversu margir skrá sig, því er nauðsynlegt að skrá sig fyrir settan tíma.Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Lesa meira

Ferðamálaklasi vaxtarsamnings Eyjafjarðar

Næstkomandi föstudag, 4. maí, verður hádegisverðafundur í boði Ferðamálaklasa vaxtarsamnings Eyjafjarðar á Hótel KEA milli kl. 12:00 og 13:00. Allir ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi eru boðnir velkomnir, en léttur hádegisverður verður í boði klasans. Nánari auglýsing um dagskrá síðar. Fyrir hönd forystuhópsMargrét VíkingsdóttirVerkefnisstjóriFerðamálasetur ÍslandsBorgir v/Norðurslóð600 AkureyriS:460-8931Netfang:mv@unak.isVefsíða:www.fmsi.is
Lesa meira

Kjörskrá vegna alþingiskosninga

Kjörskrá vegna alþingiskosninga, sem fram fara laugardaginn 12. maí nk., liggur frammi á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar.
Lesa meira

Ferðamál til framtíðar

Ferðamál til framtíðar - málþing um ferðamál í DalvíkurbyggðLaugardaginn 21. apríl 2007Dalvíkurskóla Kl. 10.45 Húsið opnað, kaffi á könnunni Kl. 11.00 Kolbrún Reynisdóttir opnar þingið. Ávarp bæjarstjóra, Svanfríðar I. JónasdótturKl. 11.05 Ferðaþjónusta í dreifbýli - Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar Hólaskóla. Kl. 11.30 Kynning frá Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi.Kl. 11.45 Náttúrufar og saga svæðisins – Kristján Eldjárn HjartarsonKl. 12.00 Hádegishlé – kynning á matvælum úr héraði Kl. 12.45 Hagræn áhrif ferðaþjónustu, samlegðaráhrif og tenging við atvinnulíf – Edward H. Huijbens, forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands.Kl. 13.15 Stuttmynd um fjallaskíðamennsku á Tröllaskaga – frá Jökli BergmannKl. 13.30 Heilsutengd ferðaþjónusta - Anna Dóra Hermannsdóttir Kl. 13.45 Unnið í sex umræðuhópum:• Hvaða ímynd viljum við hafa? Hvaða ferðamenn viljum við fá? Samvinna atvinnugreina við markaðssetningu og uppbyggingu ímyndar.• Hvernig nýtum við betur tækifæri sem búið er að benda á? (Fuglalíf, sögu- og menningartengd ferðaþjónusta, skemmtiferðaskip, gönguferðir og fjallamennska og íþróttamót ofl.)• Sjóferðir og hvalaskoðun. Hvað getum við lært af uppbyggingu hvalaskoðunar og sjóferðum frá Húsavík? - Fundur með Edward H. Huijbens.• Hvernig nýtum við okkur tækifæri sem felast í aukinni umferð í gegnum Dalvík þegar Héðinsfjarðargöng opna? • Handverk og ferðaþjónustaKl. 15.00 Kynning á niðurstöðum hópaKl. 16.00 Þingi slitiðMálþingið er öllum opið og eru þeir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu á svæðinu hvattir til að mæta og taka þáttNánari upplýsingar má finna á www.dalvik.is og hjá upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar í síma 460-4908 eða á netfanginu selma@dalvik.is
Lesa meira

Fundi um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði frestað

Áður auglýstum fundi um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði, sem vera átti á morgun, miðvikudag, í Tjarnarborg, er frestað um óákveðinn tíma fund í Tjarnarborg sem vera átti á morgun, um Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði.
Lesa meira

Frestun bæjarstjórnarfundar

Bæjarstjórnarfundi hefur verið frestað um viku til 24. apríl 2007
Lesa meira