04.03.2020
Laugardaginn 7. mars kl. 15.00 opnar Hulda Hákon sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Á þessari sýningu eru lítil málverk, lágmynd og texti sem tengjast sögum bátsmannsins.
Lesa meira
03.03.2020
Leiðbeiningar vegna COVID-2019 kórónaveirunnar og fjarveru starfsmanna,
Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á eftirfarandi er varðar leiðbeiningar vegna COVID-2019 kórónaveirunnar og fjarveru starfsmanna.
Fjármálaráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningar til stjórnenda vegna COVID-2019 kórónaveirunnar og fjarvista starfsmanna. Þar er farið yfir nokkur mikilvæg atriði varðandi kórónaveirunnar og leiðbeiningar um viðbrögð ef starfsfólk fer í sóttkví eða smitast.
Samband íslenskra sveitarfélaga tekur undir þær leiðbeiningar sem ríkið setur fram varðandi fjarvistadaga og launalega meðhöndlun þeirra. Hér að neðan hafa leiðbeiningar til launagreiðenda vegna COVID-2019 veirunnar, verið settar fram á einfaldan hátt sveitarfélögum til hægðarauka.
Lesa meira
02.03.2020
Skíðafélag Ólafsfjarðar býður upp á skíðagöngunámskeið dagana 3.-5. mars nk. kl. 18:00
Eftirspurn eftir námskeiðum fyrir fullorðna í skíðagöngu hefur stóraukist síðustu misseri og mun Skíðafélag Ólafsfjarðar bjóða áhugasömum tækifæri til að læra á gönguskíði.
Námskeiðið hentar byrjendum sem lengra komnum. Farið verður í undirstöðu atriði fyrir byrjendur, staða, rennsli, detta, bremsa o.fl. Fyrir lengra komna verður farið í tækni, þyngdarflutning, brekkur o.fl.
Lesa meira
28.02.2020
Elías Pétursson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Elías hefur síðustu tæp sex ár, starfað sem sveitarstjóri Langanesbyggðar. Þar á undan var hann sjálfstætt starfandi ráðgjafi, meðal annars hjá Mosfellsbæ. Hann er fæddur á Þórshöfn 1965.
Elías mun hefja störf hjá Fjallabyggð þann 9. mars næstkomandi.
Lesa meira
27.02.2020
Vegna uppfærslu á fjárhagskerfi hjá Fjallabyggð verða reikningar vegna leikskólagjalda og húsaleigu fyrir mars mánuð sendir út eftir helgina.
Beðist er velvirðingar á þessum töfum.
Lesa meira
27.02.2020
Nú líður að hinni árlegu ferð félagsmiðstöðvarinnar Neons á Samfestinginn og Söngkeppni Samfés sem haldin er í Laugardalshöll í Reykjavík helgina 20.-22. mars. Ferðin er nýtt til allskonar hópeflis fyrir unglingana. Farið hefur verið í bíó, skemmtigarð o.s.frv.
Lesa meira
26.02.2020
Orðsending frá Orkusölunni til íbúa Fjallabyggðar:
Kæru viðskiptavinir.
Föstudaginn 21. febrúar sl. varð rekstrartruflun á dreifikerfi RARIK sem gerði það að verkum að Fjallabyggð varð að mestu rafmagnslaus í um fjórar klukkustundir. Við slíkar aðstæður gegnir Skeiðsfossvirkjun, sem er ein af virkjunum Orkusölunnar, mikilvægu hlutverki í afhendingu raforku inn á dreifikerfi RARIK. (Lesa meira...)
Lesa meira
25.02.2020
Skíðafélag Ólafsfjarðar verður með öskudagsskemmtun í íþróttahúsinu í Ólafsfirði á öskudag, 26. febrúar kl. 14:15-15:15.
Kötturinn verður sleginn úr tunnunni og þrautabraut verður í boði.
Rúta fer frá Siglufirði (grunnskólanum) kl. 13:45 og frá Ólafsfirði (grunnskólanum) kl. 15:25.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Lesa meira
25.02.2020
Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS) auglýsa eftir ábendingum til ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNANNA 2020.
Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og er ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum. Þeim er jafnframt ætlað að efla faglegan metnað og vera hvatning til að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Að Safnaverðlaununum standa Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS).
Verðlaunin eru veitt einu safni sem þykir hafa skarað fram úr og vera til eftirbreytni. Ekki er gerður greinarmunur á tegundum safna og koma því öll söfn á landinu til greina; minja- og byggðasöfn, listasöfn, náttúrugripasöfn og önnur sérsöfn.
Safnaverðlaunin voru fyrst veitt árið 2000. Valnefnd skipuð fulltrúum félaganna og fulltrúa frá safninu sem síðast hlaut verðlaunin velur úr innsendum hugmyndum en óskað er eftir tillögum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um safn eða einstök verkefni á starfssviðið safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Söfnum er jafnframt heimilt að senda inn kynningar á eigin verkefnum. Til greina koma sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi svo sem rannsóknir og varðveisla. [meira...]
Lesa meira
22.02.2020
Opnuð hefur verið ný og glæsileg heimasíða Bókasafns Fjallabyggðar. Markmið með nýju síðunni er að auðvelda aðgengi fólks að upplýsingum á einfaldan og þægilegan hátt.
Á síðunni verða birtar fréttir úr starfinu og nú geta gestir síðunnar séð myndir af öllum nýjum bókum sem safnið kaupir hverju sinni.
Vefurinn er uppsettur í vefumsjónarkerfinu MOYA frá STEFNU hugbúnaðarhús. Vefurinn er hannaður fyrir snjalltæki (Responsive web design) og er útlit stílað til fyrir þrjár gerðir af tækjum; snjallsíma, spjaldtölvu og venjulegar tölvur
Lesa meira