Leikskóli Fjallabyggðar auglýsir eftir deildarstjórum
Leikskóli Fjallabyggðar starfar í tveimur byggðarkjörnum, í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Á Leikhólum Ólafsfirði eru 60 nemendur á þremur deildum. Á Leikskálum Siglufirði eru 60-70 nemendur á fimm deildum. Í leikskólanum leggjum við áherslu á nám í gegnum leik og hreyfingu. Einkunnarorð okkar eru Kraftur – Sköpun – Lífsgleði.
Lausar eru til umsóknar stöður deildarstjóra við skólann á Siglufirði.
Menntunar- og hæfniskröfur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Félags leikskólakennara (FL).
Ef ekki fæst leikskólakennari eða einstaklingur með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eru aðrar umsóknir teknar til skoðunar og eru þá laun samkvæmt kjarasamningum við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 11.8.2026 eða sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 11.6.2026.
Allar frekari upplýsingar veitir Kristín María Hlökk Karlsdóttir leikskólastjóri í síma 847-4011 eða á netfangið kristinm@fjallaskolar.is.
Heimasíða leikskólans
Heimasíða Fjallabyggðar