Fjallabyggðarhafnir auglýsa laust til umsóknar starf hafnarvarðar við hafnir Fjallabyggðar. Um er að ræða 100% starf og er upphaf starfs samkomulagsatriði en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið og helstu verkefni:
- Dagleg umsjón, eftirlit og viðhald á hafnarsvæðum
- Daglegt eftirlit með skipum, móttaka þeirra, leiðsögn, skráning og afgreiðsla
- Vigtun afla
- Skráning og skil upplýsinga til reikningagerðar skv. gjaldskrá
- Almenn viðhaldsverkefni og þrif
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af næsta yfirmanni
Hæfniskröfur:
- Tölvukunnátta, almenn menntun sem nýtist í starfi, skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, ákveðni, lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund.
- Æskilegt er að viðkomandi hafi löggildingu vigtarmanns
- Hreint sakarvottorð
- Gott vald á ensku og önnur tungumálakunnátta er kostur
- Staðgóð þekking á Fjallabyggðarhöfnum er kostur
- Gilt ökuskírteini
Vegna eðli starfsins er mikilvægt að viðkomandi búi á starfssvæði hafnanna.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skilað á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is, merkt „Hafnarvörður“ og er umsóknarfrestur til og með 27.febrúar n.k.
Nánari upplýsingar gefur hafnarstjóri, Þórir Hákonarson, í gegnum póstfangið thorirh@fjallabyggd.is