Breyting á aðal- og deiliskipulagi Leirutanga á Siglufirði.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar leitar ábendinga á fyrirhuguðu deiliskipulagsverkefni fyrir Leirutanga á Siglufirði. Í skipulagslýsingu, sem gefin er út af Eflu verkfræðistofu fyrir Fjallabyggð, koma fram upplýsingar um forsendur, stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Tilgangur með útgáfu lýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum.

Fjallabyggð kynnir hér áform um breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga. Markmið endurskoðunar er að búa betur um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbyggingarmöguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans. Eldra skipulag byggði á því að steypustöð austast á tanganum yrði flutt í náinni framtíð. Vegna breyttra forsenda þarf endurskoðað skipulag að gera ráð fyrir áframhaldandi starfsemi steypustöðvar á svæðinu með viðeigandi skilmálum svo það falli sem best að aðliggjandi landnotkun. Jafnframt er lögð áhersla á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist þannig að ólík starfsemi geti samræmst og styrkt heildarmynd og notagildi svæðisins. Breyting á aðalskipulagi og endurskoðun deiliskipulags Leirutanga verður auglýst samhliða.

Skipulagslýsingin sem er sett fram í greinargerð er til sýnis í Ráðhúsi Fjallabyggðar, á heimasíðu sveitarfélagsins www.fjallabyggd.is og í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á slóðinni https://skipulagsgatt.is/issues/2026/266

Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að senda inn ábendingar varðandi viðfangsefni og markmið skipulagsins frá 5.mars til 2.apríl 2026. Eingöngu er tekið við ábendingum á rafrænan hátt í gegnum skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum hjá skipulagsfulltrúa í gegnum netfangið gisli@fjallabyggd.is

BREYTING Á AÐALSKIPULAGI FJALLABYGGÐAR 2020-2032 OG ENDURSKOÐUN Á DEILISKIPULAGI LEIRUTANGA - Skipulagslýsing