Ungmennaráð Fjallabyggðar

3. fundur 18. apríl 2012 kl. 17:00 - 17:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Brynja Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðni Brynjólfur Ásgeirsson aðalmaður
  • Sveinn Andri Jóhannsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir aðalmaður
  • Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og tómstundafulltrúi

1.Ályktun ungmenna frá rástefnunni Ungt fólk og lýðræði

Málsnúmer 1204048Vakta málsnúmer

Sveinn Andri og Sigurbjörg Áróra fóru á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúa. Sveinn og Sigurbjörg gerðu grein fyrir því hvað var gert á ráðstefnunni.

2.Umgengnisreglur á sparkvöllum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1203046Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti drög að umgengnisreglum á sparkvöllum Fjallabyggðar. Ráðið gerir engar athugasemdir við drögin. Lagt er til að fenginn verði einhver góð fyrirmynd úr meistarflokki KF til að kynna reglurnar fyrir grunnskólanemum.

3.Hugmyndabanki ungmennaráðs

Málsnúmer 1204054Vakta málsnúmer

Samþykkt samhljóða að bæta þessum lið við áður auglýsta dagskrá. Ungmennaráð yfirfór hugmyndir sem komu frá nemendum 8.-10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar. Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að skoða hugmyndirnar og gera greinagerð fyrir næsta fund.

4.Íbúafundur ungmenna

Málsnúmer 1204055Vakta málsnúmer

Samþykkt samhljóða að bæta þessum lið við áður auglýsta dagskrá. Ungmennaráð leggur til að haldið verði íbúaþing fyrir ungmenni þar sem þau fá tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri. Fjármagn ungmennaráðs fyrir árið 2012 verður notað í verkefnið. Stefnt er að miðvikudeginum 9. maí kl. 17:00 í Tjarnarborg.

Fundi slitið - kl. 17:00.