Ungmennaráð Fjallabyggðar

16. fundur 13. desember 2017 kl. 16:30 - 17:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Joachim Birgir Andersen aðalmaður ungmennaráðs
  • Birna Björk Heimisdóttir varaformaður
  • Sólveig Lilja Brinks aðalmaður ungmennaráðs
  • Kara Mist Harðardóttir aðalmaður ungmennaráðs
  • Kristinn Freyr Ómarsson formaður
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

1.Málefni ungs fólks í Fjallabyggð

Málsnúmer 1712013Vakta málsnúmer

.
Rætt um málefni ungs fólks í Fjallabyggð. Hvað mætti bæta og hvernig staðan er í félagslífi nemenda í MTR, grunnskólanum og í Neon. Góð mæting hefur verið í Neon og fjölbreytt starf. Rætt um íþróttamál og vill Ungmennaráð beina því til UÍF að æskilegra væri að öll íþróttafélög í Fjallabyggð gætu sameinast undir eitt heiti eða að minnsta kosti sameinast um einn utanyfirbúning merktur UÍF. Til dæmis er dýrt fyrir foreldra að kaupa mismunandi búninga og utanyfirgalla ef börn æfa margar íþróttir

2.Frístundastyrkir Fjallabyggðar - reglur

Málsnúmer 1611062Vakta málsnúmer

Ungmennaráð fagnar hækkun á frístundastyrk til barna á aldrinum 4-18 ára úr kr. 20.000 í kr. 30.000. Ungmennaráð hvetur sveitarfélagið til að hækka frístundastyrk enn frekar á næstu árum. Einnig er það skoðun Ungmennaráðs að sex 5000 kr ávísanir séu hentugri en 10.000 kr ávísanir líkt og í fyrra.

Fundi slitið - kl. 17:30.