Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

35. fundur 21. apríl 2026 kl. 15:30 - 16:30 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Harpa Hlín Jónsdóttir fulltrúi heilsugæslu
  • María Sölvadóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri

1.Lýðheilsustefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 2601024Vakta málsnúmer

Staða verkefna fyrir sumarið.
Samþykkt
Stýrihópurinn leggur til að fólk og fyrirtæki verði hvött til þess að skrá sig og taka formlega þátt í "Hjólað í vinnuna" sem hefst 1. maí en búið er að opna fyrir skráningu. https://hjoladivinnuna.is/

25. - 31. maí í hreyfiviku UMFÍ leggur stýrihópurinn til að kennsla verði í stafagöngu. Ásdís Sigurðardóttir mun leiðbeina fólki.

Ferðafélagið Trölli býður uppá fjölskyldugöngu 27. maí í Héðinsfjörð kl. 17. Boðið upp á kleinur og safa.

Þann 30. maí sem stýrihópurinn hefur lagt til að verði "heilsueflandi dagur" verður boðið uppá kynningu á heilsueflandi heimsóknum 60 plús frá HSN og einnig verður boðið uppá heilsufarsmælingu og sýnt hvernig nota á hjarta stuðtæki.

Örnámskeið í skriðsundi verða kynnt ásamt fleiri viðburðum.

Boðið verður uppá spretthlaup fyrir yngri kynslóðina.

21. júní er sólstöðuganga í Múlann kl. 22 og er gjaldfrjáls.

Íbúar og gestir eru hvattir til að fylgjast með Ferðafélaginu Trölla á fésbókinni þar sem boðið verður upp á margvíslegar gönguferðir í sumar.

Stýrihópurinn leggur til að haldin verði "Heilsumessa" í september þar sem aðilum í Fjallabyggð verður boðið að kynna starfsemi sína. Sviðsstjóra falið að taka saman og heyra í aðilum í Fjallabyggð til að taka þátt.

Fundi slitið - kl. 16:30.