Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

34. fundur 10. mars 2026 kl. 16:00 - 17:15 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Anna Þórisdóttir fulltrúi ÚÍF
  • Harpa Hlín Jónsdóttir fulltrúi heilsugæslu
  • María Sölvadóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
  • Ásdís Sigurðardóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri

1.Hreyfispjöld heilsueflingar

Málsnúmer 2602041Vakta málsnúmer

Hreyfispjöld til heilsueflingar - einfalt, aðgengilegt og áhrifaríkt verkfæri sem hvetur fólk til reglulegrar hreyfingar og bættrar vellíðunar í daglegu lífi.
Samþykkt
Stýrihópurinn leggur til að keyptir verði a.m. k. tveir stokkar og færðir dagdvölinni.

2.Lýðheilsustefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 2601024Vakta málsnúmer

Farið yfir dagskrána framundan.
Samþykkt
Stýrihópurinn leggur til að Fjallabyggð bjóði uppá stafagöngu þann 18. apríl í tengslum við hreyfiviku UMFÍ. Laugardaginn 30. maí verður heilsueflandi dagur þar sem óskað verður liðsinnis HSN-heilsugæslunnar og boðið uppá heilsufarsmælingu og kynning á öldrunarþjónustunni ásamt fleiru. Óskað verði eftir samstarfi og kynningu m.a. á pílu og skotfimi. Auk þess sem ferðafélagið Trölli býður uppá fjölskyldugöngu í Fossdal.
Fjallabyggð hvetji fólk og fyrirtæki til að taka þátt í hinum ýmsu landsviðburðum s.s. Mottumars, hjólað í vinnuna og fleiru.

Fundi slitið - kl. 17:15.