Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

8. fundur 02. október 2019 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Björn Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara
  • Þórarinn Hannesson fulltrúi UÍF
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
  • Björk Óladóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
  • Dagný Sif Stefánsdóttir fulltrúi heilsugæslu
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Guðrún Helga Kjartansdóttir fulltrúi heilsugæslu boðaði forföll og í hennar stað sat Dagný Stefánsdóttir.
María Bjarney Leifsdóttir fulltrúi leik- og grunnskóla boðaði forföll. Í hennar stað sat Björk Óladóttir.

1.Lýðheilsuvísar 2019

Málsnúmer 1906045Vakta málsnúmer

Farið yfir lýðheilsuvísi fyrir heilbrigðisumdæmi Norðurlands. Athygli vekur hversu margir framhaldsskólanemar meta andlega heilsu sína slæma.

2.Heilsueflandi samfélag - staðan og næstu skref

Málsnúmer 1804004Vakta málsnúmer

Rætt um næstu skref í starfinu. Fyrirhugaðir eru opnir tímar fyrir almenning með leiðbeinanda í líkamsræktum sveitarfélagins á næstunni. Stefnt er að dansnámskeiði á nýju ári og fleiri verkefni verða á vegum Heilsueflandi samfélags í vetur.

Fundi slitið - kl. 16:00.