Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

6. fundur 10. janúar 2019 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðrún Helga Kjartansdóttir fulltrúi heilsugæslu
  • Þórarinn Hannesson fulltrúi UÍF
  • María Bjarney Leifsdóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Björn Þór Ólafsson boðaði forföll og Björg Sæby Friðriksdóttir varamaður hans einnig.

1.Stýrihópur heilsueflandi samfélags

Málsnúmer 1811055Vakta málsnúmer

Á 5 fundi stýrihóps um Heilsueflandi samfélag var ákveðið að óska eftir tilnefningu á varamönnum frá þeim hópum sem eiga fulltrúa í stýrihópnum.

Varamenn hafa verið tilnefndir:

Eldri borgarar tilnefndu Björgu Sæby Friðriksdóttur

Varamaður frá leik- og grunnskóla er Björk Óladóttir

Varamaður frá heilsugæslu er Dagný Sif Stefánsdóttir

Varamaður UÍF er Arnheiður Jónsdóttir

2.Heilsueflandi samfélag - staðan og næstu skref

Málsnúmer 1804004Vakta málsnúmer

Embætti landlæknis hefur sent Fjallabyggð fána Heilsueflandi samfélags með nafni Fjallabyggðar.

Stýrihópurinn hefur hug á að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á opið dansnámskeið, sex skipti. Sjá bókun í 3. dagskrárlið.

Stýrihópurinn hvetur til þess að líkt og á síðasta ári verði boðið upp á opna tíma í líkamsræktum sveitarfélagsins og vísar því til fræðslu og frístundanefndar til umfjöllunar. Í opna tíma, sem yrðu tímasettir og auglýstir, gæti fólk komið og notið leiðsagnar á tæki.

3.Dansandi Fjallabyggð - opnir danskennslutímar

Málsnúmer 1901032Vakta málsnúmer

Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag hefur hug á að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á 6 skipta opið dansnámskeið sem haldið verður í Tjarnarborg sunnudagskvöld kl. 20.00, í fyrsta sinn sunnudaginn 3. febrúar. Danskennari verður Ingunn Hallgrímsdóttir.
Gert er ráð fyrir kostnaði við námskeiðið í fjárhagsáætlun 2019. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Námskeiðið verður auglýst á næstunni.

Fundi slitið - kl. 16:00.