Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

1. fundur 06. febrúar 2018 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðrún Helga Kjartansdóttir fulltrúi heilsugæslu
  • Björn Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara
  • María Bjarney Leifsdóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Þórarinn Hannesson fulltrúi UÍF mætti ekki á fundinn.

1.Heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 1609008Vakta málsnúmer

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála bauð fundarmenn velkomna til fyrsta fundar stýrihóps Heilsueflandi samfélags.

Farið var yfir kynningu á Heilsueflandi samfélagi frá Landlæknisembættinu.

Formleg umsókn til Landlæknisembættisins um aðild Fjallabyggðar að verkefninu Heilsueflandi samfélag var fyllt út og verður send embættinu á næstu dögum. Tengiliður samfélagsins við Embætti landlæknis er Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístundar- og menningarmála.

Umsókn fyrir verkefnið inn í Lýðheilsusjóð fyrir árið 2018 var send í lok október 2017.

Framundan er vinna stýrihóps við þarfagreiningu í samfélaginu.

Að tilefni að umsókn sveitarfélagsins að Heilsueflandi samfélagi verða á næstu dögum auglýstir frídagar í líkamsræktum sveitarfélagsins og leiðsögn í notkun líkamsræktartækja. Íbúar eru hvattir til að nýta sér opnunina.

Fundi slitið - kl. 16:00.