Stjórn Hornbrekku

5. fundur 16. apríl 2018 kl. 16:00 - 17:30 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir varaformaður, S lista
  • Steinunn María Sveinsdóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Rósa Jónsdóttir aðalmaður, B lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar

1.Tímabundin undanþága frá kröfulýsingu velferðarráðuneytisins fyrir hjúkrunarrými og dvalarrými

Málsnúmer 1802068Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

2.Starfsemi Hornbrekku

Málsnúmer 1801026Vakta málsnúmer

Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku gerði grein fyrir starfsemi heimilisins undanfarin misseri. Mikið hefur áunnist í endurnýjun á búnaði og tækjum og nú standa yfir framkvæmdir á býtibúri, sem verður lokið á næstu vikum. Hefur þar með náðst að uppfylla helstu markmið um úrbætur á aðstöðu, búnaði og tækjum sem settur var á forgangslista á síðasta ári.

3.Handbók fyrir íbúa hjúkrunarheimila

Málsnúmer 1711055Vakta málsnúmer

Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) gaf út handbók fyrir íbúa hjúkrunarheimila þann 15. nóvember 2017. Handbókin var unnin innan Fagráðs hjúkrunarstjórnenda SFV og er hugsuð til að auðvelda nýjum íbúum og ættingjum þeirra að átta sig á hvað sé innifalið í dvalargjaldi sem greitt er fyrir dvölina frá Sjúkratryggingum Íslands og með lögbundinni greiðsluþátttöku íbúa.
Hjúkrunarheimili hafa síðan mismunandi hátt á hvort viðbótarþjónusta sé í boði, sem greitt er sérstaklega fyrir samkvæmt gjaldskrá viðkomandi heimilis. Að öllu jöfnu er þjónusta sem íbúi á hjúkrunarheimili sækir sér utan heimilisins ekki innifalin í dvalargjaldi nema hún sé tilgreind í handbókinni.
Elísa Rán hefur tekið saman nokkur atriði sem skoða þarf sérstaklega við ákvarðanatöku um viðbótarþjónustu og greiðsluþátttöku íbúa Hornbrekku. Áður en lengra er haldið með verkefnið er þörf á að ræða við forsvarsmenn Heilbriðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Stjórnin felur deildarstjóra félagsmáladeildar og hjúkrunarforstjóra og forstöðumanni Hornbrekku að kalla eftir fundi með framkvæmdarstjóra og læknum HSN.

4.Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, erindi

Málsnúmer 1804065Vakta málsnúmer

Lagt fram erndi frá SFV um fyrirspurnir fjölmiðla varðandi viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum. Elísa hefur svarað erindinu.

Fundi slitið - kl. 17:30.