Starfsemi Hornbrekku

Málsnúmer 1801026

Vakta málsnúmer

Stjórn Hornbrekku - 4. fundur - 10.01.2018

Elísa gerði grein fyrir starfsemi Hornbrekku, starfsmannahaldi og helstu verkefnum fram undan.

Stjórn Hornbrekku - 5. fundur - 16.04.2018

Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku gerði grein fyrir starfsemi heimilisins undanfarin misseri. Mikið hefur áunnist í endurnýjun á búnaði og tækjum og nú standa yfir framkvæmdir á býtibúri, sem verður lokið á næstu vikum. Hefur þar með náðst að uppfylla helstu markmið um úrbætur á aðstöðu, búnaði og tækjum sem settur var á forgangslista á síðasta ári.

Stjórn Hornbrekku - 7. fundur - 05.07.2018

Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku fór yfir starfsemi heimilisins.
Nýr hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður, Birna Sigurveig Björnsdóttir tekur til starfa í byrjun ágúst. Stjórn Hornbrekku þakkar Elísu fyrir ánægjulegt samstarf og vel unnin störf í þágu Hornbrekku og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Stjórn Hornbrekku - 8. fundur - 29.08.2018

Birna S. Björnsdóttir, hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku sat fundinn.
Stjórn Hornbrekku býður Birnu Sigurveigu Björnsdóttur velkomna til starfa. Birna tók við forstöðu Hornbrekku þann 14. ágúst sl. Birna fór yfir ýmis mál tengd starfsmannahaldi sem innra starfi stofnunarinnar. Hefur hún þegar hafist handa við að yfirfara starfslýsingar og verða þær lagðar fyrir starfsmenn á næstunni. Einnig verður verklag og verkferlar teknir til endurskoðunar. Stjórn Hornbrekku lýsir yfir fullum stuðningi við hjúkrunarforstjóra og forstöðumanns varðandi áform hennar sem lúta að starfsmannahaldi og innra starfi Hornbrekku.
Birna upplýsti stjórn um að umönnunarklukkustundir Hornbrekku reiknast nú 4,7 klukkustundir á hvern á íbúa í hjúkrunarrými. Uppfyllir Hornbrekka þar með viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum skv. skilgreiningu Landlæknisembættisins.
Útlit er fyrir að á næstunni verði öll hjúkrunar- og dvalarrými Hornbrekku, fullnýtt af einstaklingum með vistunarmat. Er hér um að ræða talsverða breytingu á nýtingu rýma Hornbrekku, þar sem undan farin ár hafa ávalt nokkur fjöldi rýma verið ráðstafað í fyrir hvíldar- og skammtímavistun.