Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

215. fundur 12. júlí 2017 kl. 17:00 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Valur Þór Hilmarsson aðalmaður, S lista
  • Ásgrímur Pálmason áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi

1.Deiliskipulag malarvallarins

Málsnúmer 1704081Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar vinnu við deiliskipulag malarvallarins á Siglufirði.

Nefndin samþykkir að kynna skipulagslýsinguna skv. 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

2.Óveruleg breyting á deiliskipulagi - Útivistarsvæði í Hóls og Skarðsdal, Siglufirði

Málsnúmer 1707030Vakta málsnúmer

Samþykkt
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hóls- og Skarðsdal, Siglufirði. Tillagan felur í sér hliðrun á vegarkafla efst í Skarðsdal að bílastæðum við fyrirhugaðan skíðaskála.

Nefndin samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi og felur tæknideild að afgreiða hana í samræmi við 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

3.Óveruleg breyting á deiliskipulagi - Hornbrekkubót Ólafsfirði

Málsnúmer 1707031Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi við Hornbrekkubót, í samræmi við tillögu bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar sem samþykkt var í bæjarráði 11.7.2017.
Breytingin felur í sér að gróðursett verði vestan við stíg sem liggur samsíða Ólafsfjarðarvegi og að stígurinn verði að minnsta kosti 3-4 metra frá vegi. Einnig verður göngubrú sem fyrirhuguð var samkvæmt gildandi skipulagi tekin út.

Tæknideild er falið að grenndarkynna tillöguna forsvarsmönnun Brimnes ehf. í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

4.Umsókn um framkvæmdaleyfi - Skarðsvegur Siglufirði

Málsnúmer 1707027Vakta málsnúmer

Samþykkt
Lögð fram beiðni Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við Skarðsveg, Siglufirði. Áætlað er að verkið hefjist um miðjan ágúst 2017 og að því ljúki haustið 2018. Einnig sótt um leyfi til efnistöku úr námu A, norðan Siglufjarðar nr. námu 19544 (við Selgil).

Bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti beiðni Vegagerðarinnar þann 11.júlí sl.

Nefndin samþykkir umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi og efnistöku úr námu.

5.Umsókn um byggingarleyfi - Syðri Á

Málsnúmer 1707008Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við lóð nr.10 á Syðri-Gunnólfsá.

Erindi samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.

6.Umsókn um byggingarleyfi fjárhúss í landi Hlíðar Ólafsfirði

Málsnúmer 1705006Vakta málsnúmer

Samþykkt
Undir þessum lið vék Ásgrímur Pálmason af fundi.

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjárhús í landi Hlíðar.

Erindi samþykkt.


7.Umsókn um byggingarleyfi-viðbygging við Hvanneyrarbraut 26

Málsnúmer 1706048Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Hvanneyrarbraut 26, Siglufirði.

Tæknideild er falið að grenndarkynna aðliggjandi lóðarhöfum í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

8.Umsókn um byggingarleyfi-breyting á gluggum við Fossveg 13

Málsnúmer 1707020Vakta málsnúmer

Samþykkt
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á gluggum við Fossveg 13, Siglufirði.

Erindi samþykkt.

9.Umsókn um byggingarleyfi - breytingar utanhúss við Vetrarbraut 14

Málsnúmer 1707029Vakta málsnúmer

Samþykkt
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á suðurhlið húss við Vetrarbraut 14.

Erindi samþykkt.

10.Fyrirspurn varðandi byggingarleyfi á lóð Tröllakots í Ólafsfirði

Málsnúmer 1707022Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn eiganda Tröllakots um byggingu frístundahúss á lóðinni.

Með vísun í 19.gr. reglugerðar um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats, þarf fyrirhugað hús að standast ástreymisþrýsting a.m.k. 5kN/m2.

11.Umsókn um leyfi til búfjárhalds

Málsnúmer 1707014Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um leyfi til að halda 6-10 landnámshænur við Lindargötu 16, Siglufirði.

Erindi samþykkt en nefndin áréttar að ekki er heimilt að hafa hana.

12.Athugasemd við malbikun botnlanga við Hafnartún

Málsnúmer 1707037Vakta málsnúmer

Lögð fram athugasemd vegna frágangs við malbikun botnlanga við Hafnartún.

Nefndin felur tæknideild að svara erindinu.

13.Umsókn um lóð

Málsnúmer 1707036Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um lóðina Mararbyggð 47, Ólafsfirði.

Nefndin samþykkir úthlutun á lóðinni fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu málsins til bæjarráðs.

14.Gangstéttaframkvæmdir við Kirkjuveg í Ólafsfirði

Málsnúmer 1706042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:15.