Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

184. fundur 20. maí 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Hilmar Þór Elefsen varaformaður, S lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Endurskoðun Aðalskipulags Fjallabyggðar 2008-2028

Málsnúmer 1408028Vakta málsnúmer

Árni og Lilja, starfsmenn Teiknistofu arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. komu á fund nefndarinnar til að innleiða vinnu við endurskoðun aðalskipulags Fjallabyggðar 2008-2028.

Nefndin felur tæknideild að senda tilkynningu til Skipulagsstofnunar um að ákveðið hafi verið að endurskoða Aðalskipulag Fjallabyggðar 2008-2028.

2.Breytingar á húsnæði við Hlíðarveg 18-20 Siglufirði

Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer

Lagðar fram teikningar af húsnæði við Hlíðarveg 18-20 og óskað eftir leyfi fyrir hönd Annathor ehf. til að breyta notkun byggingarinnar úr skólahúsi í fjölbýlishús. Fyrirhugað að byggja kvist á ris og nýta það fyrir tvær íbúðir. Gert er ráð fyrir 14 íbúðum í húsinu.

Nefndin samþykkir breytta notkun byggingarinnar úr skólahúsi í fjölbýlishús og felur tæknideild að grenndarkynna aðliggjandi lóðarhöfum fyrirliggjandi teikningar.

3.Umsókn um byggingarleyfi - Lækjargata 4b Siglufirði

Málsnúmer 1505042Vakta málsnúmer

Þórhallur Ásmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Lækjargötu 4b. Lagðar fram teikningar af fyrirhugaðri framkvæmd ásamt samþykki nágranna.

Nefndin samþykkir erindið.

4.Umsókn um stækkun lóðarinnar Lækjargötu 11 Siglufirði

Málsnúmer 1505043Vakta málsnúmer

Húseigendur við Lækjargötu 11 óska eftir að lóðin Lækjargata 11b og um helmingur óúthlutaðs lands vestan húss þeirra, sameinist lóðinni Lækjargötu 11. Lagður fram uppdráttur af tillögu þessari.

Nefndin samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti og felur tæknideild að ganga frá nýjum lóðarleigusamning með fyrirvara um samþykki bæjarráðs/bæjarstjórnar.

5.Breytingar á húsi við Hvanneyrarbraut 15 Siglufirði

Málsnúmer 1504001Vakta málsnúmer

Á 181.fundi skipulags- og umhverfisnefndar þann 9.apríl s.l. var tæknideild falið að grenndarkynna fyrirhugaðar breytingar á húsi við Hvanneyrarbraut 15, Siglufirði. Breytingarnar voru kynntar nágrönnum 20.apríl - 18.maí sl. og þeim gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna. Engar athugasemdir bárust.

Nefndin felur deildarstjóra tæknideildar að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst ásamt aðaluppdráttum.

6.Bréf frá Öryrkjabandalagi Íslands

Málsnúmer 1505045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Öryrkjabandalagi Íslands þar sem fram kemur hversu mikilvægt starf byggingarfulltrúa er fötluðu fólki þegar kemur að mannvirkjagerð.
Fylgiskjöl:

7.Rekstraryfirlit mars 2015

Málsnúmer 1505022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2015.

Fundi slitið.