Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

163. fundur 09. janúar 2014 kl. 16:30 - 16:30 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Jónsdóttir formaður
  • Sigurður Hlöðversson aðalmaður
  • Jón Árni Konráðsson aðalmaður
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður
  • Ásgrímur Pálmason aðalmaður
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi

1.Brunaútgangur úr grunnskóla Fjallabyggðar, Ólafsfirði

Málsnúmer 1312004Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Guðbirni Arngrímssyni þar sem hann fjallar um fyrirhugaða staðsetningu brunaútganga í grunnskóla Fjallabyggðar, Ólafsfirði og samskipti sín við Guðmund Gunnarsson hjá Mannvirkjastofnun. Einnig lagt fram minnisblað Dr. Skúla Þórðarsonar um mat á snjósöfnun við suðurgafl grunnskólabyggingarinnar og umræðu um snjóvarnir við neyðarútganga. Að auki lagt fram minnisblað frá Ævari Harðarsyni og deildarstjóra tæknideildar Fjallabyggðar.

 

Nefndin tekur undir orð Guðmundar Gunnarssonar þar sem hann segir: "Það er grundavallaratriði í sambandi við þessa flóttaleið að hún sé fær allt árið". Það verður gert með því að setja snjógildrur á þakbrún ofan útgangs, hita í stétt við útgang og uppsetningu á vindskermum ef þörf þykir samkvæmt minnisblaði Dr. Skúla Þórðarsonar.
Nefndin leggur áherslu á að lokið verði við gerð brunaútganganna sem fyrst.

2.Umsókn um byggingarleyfi, Eyrargata 25

Málsnúmer 1310060Vakta málsnúmer

Bragi Þór Haraldsson sækir um, fyrir hönd Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, leyfi til að endurnýja utanhússklæðningu hússins að Eyrargötu 25 Siglufirði. Húsið verður klætt að utan með standandi báruplötum úr aluzinki.

 

Erindi samþykkt.

3.Umsókn um leyfi til uppsetningar auglýsingaskiltis

Málsnúmer 1312006Vakta málsnúmer

Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir sækir um, fyrir hönd Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg, leyfi til að setja upp auglýsingaskilti við gatnamót Skarðsvegar og afleggjarans í skógræktina samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

 

Nefndin samþykkir erindið. Staðsetning og frágangur verði gerður í samráði við tæknideild.

 

 

4.Uppsetning stoðvirkja í Hafnarfjalli - fundargerðir

Málsnúmer 1307013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar framvinduskýrsla unnin af Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir árið 2013 vegna vinnu við snjóflóðavarnir í Hafnarfjalli, Siglufirði.

5.Rekstraryfirlit október 2013

Málsnúmer 1312014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:30.