Umsókn um leyfi til uppsetningar auglýsingaskiltis

Málsnúmer 1312006

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 163. fundur - 09.01.2014

Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir sækir um, fyrir hönd Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg, leyfi til að setja upp auglýsingaskilti við gatnamót Skarðsvegar og afleggjarans í skógræktina samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

 

Nefndin samþykkir erindið. Staðsetning og frágangur verði gerður í samráði við tæknideild.