Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

159. fundur 18. september 2013 kl. 16:30 - 16:30 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Jónsdóttir formaður
  • Sigurður Hlöðversson aðalmaður
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður
  • Ásgrímur Pálmason aðalmaður
  • Kristjana Rannveig Sveinsdóttir varamaður
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi

1.Ástand húsa við Aðalgötu 6 og 6b á Siglufirði

Málsnúmer 1301100Vakta málsnúmer

Á 157. fundi nefndarinnar var ákveðið að fresta fyrirhuguðum dagsektum á eiganda fasteignarinnar að Aðalgötu 6 vegna þess að fyrirliggjandi var áætlun eigenda um að nauðsynlegum endurbótum yrði lokið fyrir 15. ágúst.

 

Nú í dag, 18. september, hefur ekkert verið framkvæmt af verkáætluninni sem eigandinn lagði fram.

 

Því samþykkir nefndin að leggja dagsektir á fasteignina Aðalgata 6 Siglufirði að upphæð kr. 10.000 sem byrja að telja frá og með mánudeginum 23. september næstkomandi.

2.Umsókn um byggingarleyfi, spennistöð

Málsnúmer 1307032Vakta málsnúmer

Á 158. fundi nefndarinnar var tekin fyrir umsókn Rarik ohf um byggingarleyfi fyrir spennistöð við Hverfisgötu 38 á Siglufirði. Var samþykkt að framkvæmdin yrði grenndarkynnt nálægum lóðarhöfum. Grenndarkynningunni lauk þann 28. ágúst síðastliðinn og kom sameiginleg athugasemd frá öllum þeim sem fengu grenndarkynninguna í hendur.

 

Athugasemdirnar eru hér með lagðar fram til kynningar.

3.Stöðuleyfi fyrir bráðabirgðaspennistöð

Málsnúmer 1307038Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi nefndarinnar, þann 24. júlí síðastliðinn samþykkti nefndin stöðuleyfi fyrir bráðabirgðaspennistöð á horni Hverfisgötu og Hávegs til tveggja mánaða. Það leyfi rennur út þann 24. september næstkomandi.

 

Þar sem verið er að vinna úr grenndarkynningu (sbr. lið 2 í fundargerð þessari) sem haldin var vegna fyrirhugaðrar byggingar varanlegrar spennistöðvar á svipuðum stað samþykkir nefndin að framlengja stöðuleyfi fyrir bráðabirgðaspennistöð um þrjá mánuði frá deginum í dag að telja, eða til 18. desember næstkomandi.

4.Gangbraut við Gránugötu á Siglufirði

Málsnúmer 1309034Vakta málsnúmer

Vegna breyttra gönguleiða grunnskólabarna á Siglufirði í hádegismat er nauðsynlegt að bregðast við með tilliti til umferðaröryggis en nú borða börnin á Kaffi Rauðku. Því þarf að setja upp gangbrautir yfir Gránugötu en umferð á Gránugötu getur bæði verið mikil og þung, sérstaklega í kringum hádegi þegar börnin eru á ferð í og úr mat.

 

Nefndin samþykkir að setja upp gangbraut við gatnamót Aðalgötu og Norðurgötu, tvær við gatnamót Gránugötu og Norðurgötu og eina yfir Gránugötu rétt ofan Grundargötu.

5.Umsókn um byggingarleyfi, Snorragata 14

Málsnúmer 1307042Vakta málsnúmer

Stefán Örn Stefánsson frá Argos ehf sækir um f.h. Síldarminjasafns Íslands byggingarleyfi fyrir Gæruhúsinu sem áætlað er að reisa á lóðinni Snorragata 14 á Siglufirði.

 

Fyrirhuguð bygging er í fullu samræmi við deiliskipulag svæðisins og er því byggingarleyfi samþykkt.

6.Hugmynd um gerð tröllagerðis

Málsnúmer 1308037Vakta málsnúmer

Lagðar fram hugmyndir Shok Han Liu og Önnu Maríu Guðlaugsdóttur um gerð tröllagerðis í Ólafsfirði.

 

Nefndin samþykkir að boða þær á næsta fund nefndarinnar.

7.Umsókn um lóð undir eldsneytisafgreiðslu

Málsnúmer 1308029Vakta málsnúmer

Guðlaugur Pálsson f.h. N1 hf sækir um lóð undir eldsneytisafgreiðslu að Vesturtanga 18 á Siglufirði samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

 

Nefndin tekur jákvætt í erindið en óskar eftir nánari upplýsingum um útlit og hönnun á lóðinni.

8.Umsókn um endurnýjun stöðuleyfis fyrir gám

Málsnúmer 1308018Vakta málsnúmer

Ingi Vignir Gunnlaugsson og Helgi Þórðarson sækja um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir 40 feta gám sem þeir nota sem heygeymslu við hesthús sitt í Ólafsfirði.

 

Nefndin samþykkir stöðuleyfi í eitt ár og leggur til við tæknideild að hún endurskoði stöðuleyfisveitingar gáma með það að markmiði að gámar séu staðsettir á skipulögðum gámasvæðum í framtíðinni.

9.Umsókn um skilti fyrir hjólastólastæði að Hávegi 8 Siglufirði

Málsnúmer 1309005Vakta málsnúmer

Magnús Björgvinsson eigandi fasteignarinnar Hávegur 8 á Siglufirði óskar eftir leyfi nefndarinnar til að setja upp merki sem sýnir bifreiðastæði fyrir fatlaða einstaklinga fyrir utan hús sitt.

 

Nefndin samþykkir erindið og felur tæknideild að ákveða nánari staðsetningu.

10.Hornbrekka, ræktarland 19, Ólafsfirði

Málsnúmer 1108053Vakta málsnúmer

Lagður fram lóðarleigusamningur fyrir Hornbrekkulóð nr. 19.

 

Erindi samþykkt.

11.Lóðarleigusamningur, Hólkot 2

Málsnúmer 1307041Vakta málsnúmer

Lagður fram lóðarleigusamningur fyrir Hólkot 2.

 

Erindi samþykkt.

12.Rekstraryfirlit júlí 2013

Málsnúmer 1308057Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:30.