Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

337. fundur 21. október 2026 kl. 16:00 - 16:56 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Pálmi Blængsson aðalm.
  • Jón Valgeir Baldursson aðalm.
  • Aðalbjörg Snorradóttir aðalm.
  • Stefán Júlíusson aðalm.
  • Viktor Freyr Elísson aðalm.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs
Formaður hefur fund á að leggja til breytingar á dagskrá fundar. Mál nr.7, málsnr. 2603001 á útsendri dagskrá verður tekið af dagskrá og máli nr. 2610067 verður bætt á dagskrá fundarins og verður þá nr. 7 á dagskrá fundarins. Breytingin er samþykkt samhljóða.

1.Leirutangi - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2107019Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi Leirutanga, sem auglýst var frá 18.08.2026 - 01.10.2026. Einnig lagðar fram þær umsagnir sem bárust og tillaga að svörum við þeim.
Samþykkt
Nefndin samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi vegna Leirutanga verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. og 42. gr.

2.Leirutangi - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2604033Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á aðalskipulagi vegna Leirutanga sem auglýst var frá 18.08.2026 - 01.10.2026. Einnig lagðar fram þær umsagnir sem bárust og tillögur að svörum við þeim.
Samþykkt
Nefndin samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 31. og 32. gr.

3.Fyrirspurn um lóð að Mjóstræti 1

Málsnúmer 2610046Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn Sigríðar Grétu Sigfúsdóttur og Jónasar Sjafnar Stefánssonar um lóð að Mjóstræti 1, 580 Siglufirði.
Samþykkt
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að umsækjanda verði veitt vilyrði fyrir lóðinni að Mjóstræti 1 í samræmi við 5. gr reglna um úthlutun lóða í Fjallabyggð.

4.Ósk um skil á lóð að Suðurgötu 85

Málsnúmer 2512011Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur þar sem óskað er eftir skil á lóðinni Suðurgötu 85, Siglufirði.
Samþykkt
Samþykkt

5.Umsókn um lóð að Suðurgötu 73

Málsnúmer 2610057Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn dagsett 13.10.2026 þar sem Kristín Jónsdóttir og Grétar Örn Sveinsson sækja um lóðina við Suðurgötu 73, Siglufirði.
Samþykkt
Samþykkt.

6.umsókn um framkvæmdarleyfi á flugvelli Siglufjarðar

Málsnúmer 2609083Vakta málsnúmer

Ósk um framkvæmdarleyfi vegna þyrlupalla á flugvallarsvæði Siglufjarðar.
Samþykkt
Samþykkt.

7.Útlitsbreyting á Vesturtanga 2-6

Málsnúmer 2610067Vakta málsnúmer

Umsókn um minniháttar breytingu á útliti húss að Vesturtanga 2-6
Samþykkt
Samþykkt með fyrirvara um að framkvæmdin uppfylli skilyrði byggingarreglugerðar.

Fundi slitið - kl. 16:56.