Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

124. fundur 12. maí 2026 kl. 16:00 - 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður
  • Ægir Bergsson formaður
  • Karen Sif Róbertsdóttir aðalm.
  • Ásta Lovísa Pálsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Trilludagar 2026

Málsnúmer 2605022Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri greindi frá stöðu mála varðandi Trilludaga sem fram fara laugardaginn 25.júlí n.k. Í vinnslu er samkomulag við Kiwanis vegna umsjónar líkt og verið hefur undanfarið ár sem og samkomulag við Smádjarf, sem er unglingadeild björgunarsveitanna, um aðkomu þeirrar deildar að Trilludögum.
Samþykkt
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi drög að fyrirkomulagi Trilludaga 2026

2.17. júní 2026

Málsnúmer 2605023Vakta málsnúmer

Samningur Fjallabyggðar og Björgunarsveitarinnar Stráka um undirbúning og framkvæmd á 17.júní hátíðarhöldum er útrunninn og hefur björgunarsveitin tilkynnt að hún hafi ekki hug á að framlengja fyrri samning.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur áherslu á að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til þess að taka að sér framkvæmd 17.júní hátíðarhalda.

3.Síldarævintýrið 2026

Málsnúmer 2605025Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá stýrihópi um framkvæmd Síldarævintýris 2026 og fundi bæjarstjóra með fulltrúa hópsins.
Lagt fram til kynningar
Nefndin þakkar stýrihópi fyrir vinnuskjalið og telur mikilvægt að tekin verði umræða á vettvangi bæjarstjórnar Fjallabyggðar um hvert skipulag Síldarævintýris á að vera til lengri tíma.

Fundi slitið - kl. 17:00.