Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

71. fundur 02. desember 2020 kl. 17:00 - 18:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Ida Marguerite Semey aðalmaður, I lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

1.Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2021

Málsnúmer 2009060Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd fór yfir tilnefningar til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2021 en frestur til að skila tilnefningum rann út 28. október sl.. Alls bárust tólf tilnefningar og þakkar nefndin íbúum fyrir þær. Útnefning fer fram á nýju ári. Markaðs- og menningarnefnd útnefnir Jón Þorsteinsson söngvara bæjarlistamann Fjallabyggðar 2021.

2.Styrkumsóknir 2021 - Menningarmál

Málsnúmer 2009074Vakta málsnúmer

Umsóknir um menningarstyrki fyrir árið 2021 lagðar fram til kynningar. Markaðs- og menningarnefnd tekur afstöðu til og úthlutar menningarstyrkjum á fundi sínum í janúar.

3.Fundadagatöl 2021

Málsnúmer 2011044Vakta málsnúmer

Skipulag funda markaðs- og menningarnefndar á árinu 2021 lagt fram til kynningar. Nefndin samþykkir það með áorðnum breytingum.

Fundi slitið - kl. 18:15.