Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

50. fundur 16. janúar 2019 kl. 17:00 - 19:10 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður I lista
  • Rodrigo Junqueira Thomas varamaður, I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.
Ida Marguerite Semey boðaði forföll og Rodrigo Junqueira Thomas mætti í hennar stað.


Fundarmenn hófu fundinn á því að skoða Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar undir stjórn Hrannar Hafþórsdóttur forstöðumanns.

1.Tjarnarborg - veitingarsala

Málsnúmer 1811100Vakta málsnúmer

Ásta Sigurfinnsdóttir umsjónarmaður Tjarnarborgar sat undir þessum lið. Lögð voru fram drög að reglum vegna vínveitingasölu í Menningarhúsinu Tjarnarborg. Einnig voru lögð fram drög að samningi vegna vínveitingasölu í menningarhúsinu. Nefndin samþykkir drögin fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum og vísar til bæjarráðs.

2.Vorfundur ferðaþjónustu, menningar og afþreyingar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1901031Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi lagði fram dagskrá að fyrirhuguðum Vorfundi ferðaþjónustu-, menningar- og afþreyingaraðila í Fjallabyggð. Fundurinn verður haldinn 28. febrúar í Tjarnarborg.

3.Markaðsstefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1811009Vakta málsnúmer

Skipa þarf vinnuhóp til að vinna drög að markaðsstefnu Fjallabyggðar. Markaðs- og menningarfulltrúa falið að kanna hentuga samsetningu vinnuhóps og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

4.Afhending menningastyrkja og útnefning bæjarlistamanns.

Málsnúmer 1901019Vakta málsnúmer

Afhending menningarstyrkja fer fram í Tjarnarborg fimmtudaginn 24. janúar kl. 18.00. Afhentir verða menningarstyrkir vegna viðburða og hátíða sem markaðs- og menningarnefnd úthlutar ásamt þeim styrkjum sem bæjarráð úthlutar í menningarmálum.

Fundi slitið - kl. 19:10.