Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

49. fundur 05. desember 2018 kl. 17:00 - 18:30 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Ida Marguerite Semey aðalmaður, I lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður I lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir varamaður, I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.
Jón Kort Ólafsson boðaði forföll og varamaður hans einnig.

1.Tjarnarborg - veitingarsala

Málsnúmer 1811100Vakta málsnúmer

Ida M Semey vék á fundi undir þessum lið. Varamaður hennar Guðrún Linda Rafnsdóttir sat í hennar stað. Markaðs- og menningarnefnd felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála ásamt umsjónarmanni Tjarnarborgar að gera drög að reglum um veitingasölu í Tjarnarborg og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

2.Rekstur tjaldsvæða 2018

Málsnúmer 1802042Vakta málsnúmer

Ida M Semey vék á fundi undir þessum lið. Varamaður hennar Guðrún Linda Rafnsdóttir sat í hennar stað. Þjónustusamningar um um rekstur tjaldsvæða Fjallabyggðar eru lausir. Markaðs- og menningarnefnd þakkar þjónustuaðilum fyrir störf sín. Markaðs- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að auglýst verði eftir rekstraraðilum fyrir tjaldsvæði í báðum byggðarkjörnum fyrir árið 2019.

3.Kynning á Erasmus

Málsnúmer 1810089Vakta málsnúmer

Ægir Bergsson vék af fundi og Guðrún Linda Rafnsdóttir tók sæti í hans stað.
Ida M. Semey kynnti ýmsa styrkmöguleika fyrir einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög, sem hægt er að sækja um t.d. í menningarverkefni og ferðaþjónustu.

4.Samráðsfundur ferðaþjónustu í Fjallabyggð

Málsnúmer 1811008Vakta málsnúmer

Þann 22. nóvember sl. hélt Markaðs- og menningarnefnd vel heppnaðan súpufund með menningar-, ferðaþjónustu- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð. Vel var mætt á fundinn og erindi voru áhugaverð og vill Markaðs- og menningarnefnd þakka bæði fyrirlesurum og fundarmönnum fyrir þátttökuna. Markaðs- og menningarnefnd hefur hug á að halda annan fund í febrúar 2019. Ákveðið var að fylgja fundinum eftir með stuttri spurningakönnun til fundarmanna og vonast nefndin eftir góðum viðbrögðum þegar könnunin verður send út.

Fundi slitið - kl. 18:30.