Hafnarstjórn Fjallabyggðar

83. fundur 05. september 2016 kl. 17:00 - 17:50 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Hilmar Þór Zophoníasson varaformaður, F lista
  • Gunnlaugur Oddsson aðalmaður, F lista
  • Margrét Ósk Harðardóttir aðalmaður, D lista
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson aðalmaður, D lista
  • Sverrir Sveinsson áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Andri Þór Andrésson tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Andri Þór Andrésson tæknifulltrúi

1.Aflatölur og aflagöld 2016

Málsnúmer 1602026Vakta málsnúmer

Fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar 1. janúar 2016 til og með 31. ágúst 2016.

Siglufjörður 10.960 tonn í 1.534 löndunum.
Ólafsfjörður 396 tonn í 454 löndunum.

Samanburður frá sama tímabili 2015.

Siglufjörður 12.556 tonn í 1.816 löndunum.
Ólafsfjörður 442 tonn í 508 löndunum.

Lagt fram til kynningar.

2.Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum

Málsnúmer 1606064Vakta málsnúmer

Í erindi Umhverfisstofnunar, dagsett 23. júní 2016, kemur fram að endurskoða þurfi áætlun hafna Fjallabyggðar, um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum sem staðfest var af Umhverfisstofnun 12. apríl 2013.

Erindinu var vísað til bæjarstjóra og yfirhafnarvarðar. Málið verður tekið fyrir við gerð fjárhagsáætlana og ákvörðun gjaldskrár Fjallabyggðahafna í desember.

3.Stefnumörkun Hafnasambands Íslands - til umsagnar

Málsnúmer 1608036Vakta málsnúmer

Drög að stefnumörkun fyrir Hafnasamband Íslands unnin af stefnumótunarnefnd Hafnasambandsins lögð fyrir hafnarstjórn til umsagnar.

Lagt fram til kynningar og afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Stækkun dýpkunarsvæðis

Málsnúmer 1608065Vakta málsnúmer

Teikning af stækkuðu dýpkunarsvæði lögð fyrir hafnarstjórn til kynningar.

5.Hafnasambandsþing 2016 - Ísafirði

Málsnúmer 1605017Vakta málsnúmer

Stjórn Hafnasambands Íslands boðar til 40. hafnasambandsþings á Ísafirði dagana 13. og 14. október 2016.

Fulltrúi hafnarstjórnar Fjallabyggðar mun sækja þingið fyrir hönd hafnarstjórnar og verður það Ásgeir Logi Ásgeirsson.

6.Framkvæmdakostnaður og fjárþörf fyrir framkvæmdir á Bæjarbryggju

Málsnúmer 1608060Vakta málsnúmer

Umræða um framkvæmdakostnað og fjárþörf fyrir framkvæmdir á bæjarbryggju.

Hafnarstjóri fór yfir framkvæmdakostnað og fjárþörf fyrir framkvæmdir á bæjarbryggju. Kostnaður við framkvæmdina er á pari við áætlun.

7.Skýrsla innanríkisráðherra um stöðu hafna

Málsnúmer 1609003Vakta málsnúmer

Skýrsla innanríkisráðherra um stöðu hafna lögð fyrir hafnarstjórn til kynningar.

8.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2016

Málsnúmer 1601007Vakta málsnúmer

Fundargerð 386. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lagt fyrir hafnarstjórn til kynningar.

9.Sjósetning nýs skips Rammans

Málsnúmer 1609024Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn fagnar sjósetningu nýs skips Rammans, Sólbergi, sem fram fór í Tyrklandi fyrir helgina.

10.Endurbygging Bæjarbryggju á Siglufirði

Málsnúmer 1505028Vakta málsnúmer

Teikning varðandi malbikun í tengslum við endurbyggingu bæjarbryggju lögð fyrir hafnarstjórn til kynningar.

Hafnarstjórn samþykkir framlagðar tillögur hafnarstjóra.

Fundi slitið - kl. 17:50.