Hafnarstjórn Fjallabyggðar

50. fundur 25. október 2013 kl. 12:00 - 17:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Sverrir Sveinsson formaður
  • Steingrímur Ó. Hákonarson aðalmaður
  • Guðmundur Gauti Sveinsson aðalmaður
  • Ólafur Haukur Kárason aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Sigurður Helgi Sigurðsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson hafnarstjóri

1.Hafnafundur 2013 í Grindavík

Málsnúmer 1308013Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn er varðar fund í Grindavík frá 20. september 2013. Fundarmenn eru hvattir til að kynna sér stöðu hafna og samanburð við hafnir Fjallabyggðar.

Næsta þing Hafnasambandsins verður haldið í Fjallabyggð og á Dalvík.

2.Slæmt ástand hafnargötunnar í Ólafsfirði

Málsnúmer 1308050Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá 28.08.2013, frá þremur fiskvinnslum í Ólafsfirði. Um er að ræða ábendingar um lélegt ástand á götum og kvartanir um lélegan snjómokstur og hálkuvarnir.

Hafnarstjórn mun skoða og ræða úrbætur við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Mikil umræða var um snjómokstur í hafnarstjórn og komu fram ábendingar sem vert er að skoða.

 

3.Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám á Óskarsbryggju

Málsnúmer 1308021Vakta málsnúmer



Daði Steinn Björgvinsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám á Óskarsbryggju. Hafnarstjórn staðfestir ákvörðun yfirhafnarvarðar er varðar  stöðuleyfi til eins árs. Lögð er þung áhersla á að umhverfi gámsins sé til fyrirmyndar.



Hafnarstjórn tók til umræðu umhverfi Óskarsbryggu.


Yfirhafnarvörður kom með ábendingar um óviðunandi ástand á svæði umhverfis Óskarsbryggju. Sérstaklega er bent á svæði norðan við öldubrjót á Óskarsbryggju.
Óskað er eftir því að timbur á svæðinu verði kurlað, svæðið hreinsað og því lokað fyrir slík afnot.


Ástand á svæðinu er bæjarfélaginu ekki til sóma. Lögð er áhersla á að svæðið verði hreinsað sem fyrst.

4.Fjárhagsáætlun 2014 og 2015 - 2017

Málsnúmer 1304016Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn ræddi hugmyndir um viðhaldsverkefni og framkæmdir á næsta fjárhagsári.

Neðanritað var fært til bókar eftir miklar umræður.

Viðhaldsverkefni:
Aðkoma að hafnarsvæðum Ólafsfjarðar

Innri höfnin, aðkoma og umhverfi

Aðkoma að Óskarsbryggu

Viðhald á dekkjum

Endurnýja þarf einn löndunarkrana á Siglufirði


Framkvæmdir

Hafnarstjórn leggur nú sem áður áherslu á endurbyggingu Hafnarbryggju.

5.Hafnir landsins og matvælaöryggi

Málsnúmer 1310049Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Mast, matvælastofnu dags. 14. október 2013.

6.Rekstraryfirlit ágúst 2013

Málsnúmer 1310021Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir janúar - ágúst 2013.

7.Fundagerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2013

Málsnúmer 1301086Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.