Hafnarstjórn Fjallabyggðar

111. fundur 03. febrúar 2020 kl. 17:00 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður, D lista
  • Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir varaformaður I lista
  • Helga Helgadóttir varamaður, D lista
  • Ægir Bergsson aðalmaður, I lista
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir hafnarstjóri
Andri Viðar Víglundsson fjarverandi og boðaði ekki forföll.

1.Rekstraryfirlit - 2019

Málsnúmer 1908013Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri fór yfir rekstraryfirlit tímabilsins 1.01.19 - 31.12.19 fyrir Fjallabyggðarhafnir. Bráðabirgða rekstrarniðurstöður eru góðar fyrir árið 2019.

2.Aflatölur 2019

Málsnúmer 1902009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar tímabilið 1. janúar - 31. desember 2019 ásamt samanburði við sama tíma árið 2018.
2019 Siglufjörður 28830 tonn í 1873 löndunum.
2019 Ólafsfjörður 389 tonn í 363 löndunum.
2018 Siglufjörður 24207 tonn í 1816 löndunum.
2018 Ólafsfjörður 478 tonn í 457 löndunum.

3.Eftirfylgni mála hafnarinnar - 2020

Málsnúmer 2001105Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála á höfninni.

4.Tjón á höfn

Málsnúmer 2001048Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning yfirhafnavarðar dags. 16.01.2020 vegna tjóns á grjótvarnargarði við landfyllingu norðan Hafnarbryggju.

Tjónið verður metið frekar í vor, þegar snjóa leysir.

5.Tilkynning um uppfærðar leiðbeinandi reglur um meðferð dýpkunarefnis

Málsnúmer 2001031Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Umhverfisstofnun dags. 9. janúar 2020 vegna leiðbeinandi reglna um meðferð dýpkunarefnis.

Hægt er að nálgast reglurnar á slóðinni :
https://ust.is/haf-og-vatn/varp-i-hafid-og-lagnir-i-sjo/varp-i-hafid/

6.Smáforritið afladagbók

Málsnúmer 2001047Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar erindi frá Fiskistofu dags. 16. janúar 2020 varðandi kynningu á smáforriti fyrir rafræna skráningu afla í stað afladagbóka á pappír.

Hægt er að sækja forritið í App Store og Play Store. Með tilkomu appsins er stigið stórt framfaraskref sem felur í sér bætta yfirsýn og vinnusparnað fyrir útgerðir, skipstjórnarmenn sem og stjórnsýslu.

Sjá nánari upplýsingar: http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/frettir/afladagbokin-smaforrit-fyrir-rafraena-skraningu-afla

7.Seatrade Cruise Med september 2020

Málsnúmer 2001058Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Lindu Leu Bogadóttur markaðs- og menningarfulltrúa um markaðsmál hafnarinnar. Hafnarstjórn felur Anitu Elefsen ásamt markaðs- og menningarfulltrúa að sækja SeaTrade Cruise Med þann 16. - 17. september nk. í Malaga á Spáni.

8.Erindi vegna opnunartíma hafnarvoga í fjallabyggð

Málsnúmer 2001082Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Andra Viðars Víglundssonar dags. 25. janúar 2020 vegna opnunartíma hafnarvoga í Fjallabyggð.

Erindi frestað til næsta fundar vegna fjarveru Andra Viðars Víglundssonar.

9.Erindi vegna ráðningar hafnarvarðar.

Málsnúmer 2001081Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Andra Viðars Víglundssonar dags. 25. janúar 2020 varðandi ráðningu hafnarvarðar.

Erindi frestað til næsta fundar vegna fjarveru Andra Viðars Víglundssonar.

10.Viðbragðsáætlun Fjallabyggðahafna - 2020

Málsnúmer 2001086Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar viðbragðsáætlun Fjallabyggðahafna - 2020 sbr. 26. grein reglugerðar um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda, nr. 1010/2012.

11.Árlegur aðalfundur Cruise Iceland

Málsnúmer 2001087Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Anitu Elefsen dags. 28. janúar 2020 varðandi aðalfund Cruice Iceland þann 8. maí 2020.

Hafnarstjórn samþykkir erindið og vísar því til markaðs- og menningarfulltrúa til úrvinnslu.

12.Clean up Iceland

Málsnúmer 2001093Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Gáru ehf. dags. 29. janúar 2020 varðandi Clean up Iceland sem felur í sér að farþegar leiðangursskipa fara í land og tína rusl í útvöldum fjörum ásamt heimamönnum.

Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur markaðs- og menningarfulltrúa að útfæra hugmyndina.

13.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2019

Málsnúmer 1901025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundargerð 418 og 419 hafnarsambandsins.

14.Fundargerdir Hafnasambands Íslands 2020

Málsnúmer 2001068Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundargerð 20. fundar Siglingarráðs frá 7.nóvember sl.

Fundi slitið - kl. 18:15.