Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

13. fundur 23. september 2026 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir aðalm.
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs

1.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Tekið til umfjöllunar tillögur að breytingum á Gjaldskrám Fjallabyggðar fyrir árið 2027 sem byggir á almennri 2,5% hækkun gjalda.
Samþykkt
Tillögur að gjaldskrám fyrir árið 2027 með flatri 2,5% hækkun samþykktar samhljóða.

2.Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits NV 2026

Málsnúmer 2604025Vakta málsnúmer

Fyrir liggja skýrslur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er varðar losun lífræns úrgangs frá G1 í fráveitukerfi Ólafsfjarðar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að formaður ásamt sviðsstjóra hittist á staðnum með málsaðila.

Bókun frá fulltrúa D lista: Málið er til meðferðar hjá Heilbrigðiseftirlitinu og því telur fulltrúi D-lista ekki tilefni til sérstakrar umfjöllunar af hálfu nefndarinnar. Í fyrirliggjandi skýrslu kemur skýrt fram hvaða úrbætur málsaðili þarf að ráðast í svo unnt sé að leysa málið. Ábyrgð á þeim úrbótum hvílir alfarið á málsaðila og ekki þörf á aðkomu sveitarfélagsins.

3.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 484. og 485. fundi stjórnar Hafnarsambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

4.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 2601048Vakta málsnúmer

Hafnasambandsþing 2026 verður haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23.október n.k. Gert er ráð fyrir því að 2 fulltrúar mæti á þingið f.h. Fjallabyggðarhafna.
Samþykkt
Nefndin leggur til að tveir fulltrúar Fjallabyggðarhafna sæki þingið.

5.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Landaður afli í ágúst var 1.822 tonn en var í ágúst í fyrra 2.420 tonn, semsagt töluverður samdráttur og nær öllum afla landað á Siglufirði.

Heildarafli á árinu 2026 frá áramótum er þá 7.583 tonn á móti 8.650 tonnum árið 2025 á fyrstu 8 mánuðum ársins.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

Fundi slitið - kl. 18:00.