Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

18. fundur 16. apríl 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Nanna Árnadóttir formaður, S lista
  • Guðný Kristinsdóttir varaformaður, F lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ásdís Sigurðardóttir varamaður, F lista
  • Ólafur Guðmundur Guðbrandsson áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Hjörtur Hjartarson félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar

1.Skóladagatal Grunnskóla Fjallabyggðar 2014-2015

Málsnúmer 1504026Vakta málsnúmer

Ríkey Sigurbjörnsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar mætti á fundinn kl. 17:00. Ríkey lagði fram skóladagatal Grunnskólans fyrir skólaárið 2015-2016. Ríkey fór yfir dagatalið og svaraði fyrirspurnum. Skóladagatalið er samræmt meðal grunnskólanna á Eyjarfjarðarsvæðinu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Grunnskóla Fjallabyggðar.

2.Foreldrakönnun Skólapúlsins, 1.-7. bekkur 2014-2015

Málsnúmer 1504027Vakta málsnúmer

Ríkey kynnti niðurstöður úr foreldrakönnun skólapúlsins fyrir 1.-7. bekk. Skólastjóra falið að taka saman helstu niðurstöður könnunarinnar fyrir næsta fund nefndarinnar.

3.Foreldrakönnun Skólapúlsins, 8.-10. bekkur 2014-2015

Málsnúmer 1504028Vakta málsnúmer

Ríkey kynnti niðurstöður úr foreldrakönnun skólapúlsins fyrir 8.-10. bekk. Skólastjóra falið að taka saman helstu niðurstöður könnunarinnar fyrir næsta fund nefndarinnar.

4.Niðurstöður úr Olweusarkönnun 2014

Málsnúmer 1504029Vakta málsnúmer

Ríkey gerði grein fyrir niðurstöðum Olweusarkönnunar 2014. Einelti mælist 6,3%. Á landsvísu mælist einelti 4,8%.

5.Skólamötuneyti, fjöldatölur 2010-2015

Málsnúmer 1504030Vakta málsnúmer

Skólastjóri lagði fram yfirlit yfir skráningu í skólamötuneytið Grunnskóla Fjallbyggðar fyrir starfsstöðina á Siglufirði. Í samantektinni kemur fram að heldur hefur dregið úr skráningu nemenda í skólamötuneytið en í aprílmánuði er skráningin 48%.

6.Sjálfsmatsáætlun Grunnskóla Fjallabyggðar 2015-2018

Málsnúmer 1504031Vakta málsnúmer

Ríkey lagði fram til kynningar sjálfsmatsskýrslu og sjálfsmatsáætlun Grunnskóla Fjallabyggðar. Við sjálfsmat í Grunnskóla Fjallabyggðar er stuðst við sjálfsmatstækið Gæðagreinar 2. Auk þess er fengist við annað mat á starfi skólans s.s. með viðhorfskönnun meðal nemenda, foreldra og starfsmanna skólans. Ríkey kynnti þriggja ára áætlun skólans, sem nær yfir alla helstu þætti skólastarfsins.
Ríkey vék af fundi kl. 18:10

7.Leikskólinn Leikskálar - reglubundin skoðun 12.febrúar 2015

Málsnúmer 1502123Vakta málsnúmer

Olga Gísladóttir, skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar mætti á fundinn kl. 18:10. Olga lagði fram greinargerð með svörum við einstaka liði skýrslu Vinnueftirlitsins, vegna úttektar á Leikskólanum sem gerð var 12. febrúar síðastliðnum.

8.Skóladagatal Leikskóla Fjallabyggðar 2015 - 2016

Málsnúmer 1504033Vakta málsnúmer

Olga lagði fram skóladagatal Leikskóla Fjallabyggðar fyrir skólaárið 2015-2016. Olga fór yfir dagatalið og svaraði fyrirspurnum.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Leikskólans.
Olga vék af fundi kl. 18:30.
Ásdís Sigurðardóttir vék af fundi kl. 18:30.

9.Skóladagatal Tónskóla Fjallabyggðar 2015-2016

Málsnúmer 1504032Vakta málsnúmer

Magnús G. Ólafsson, skólastjóri Tónskóla Fjallabyggðar mætti á fundinn kl. 18:30. Magnús lagði fram skóladagatal Tónskólans fyrir skólaárið 2015-2016. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Tónskólans. Undir þessum lið ræddi Magnús um einnig um ýmis skipulagsmál skólans.
Magnús vék af fundi kl. 18:50.

10.Rekstraryfirlit febrúar 2015

Málsnúmer 1503088Vakta málsnúmer

Niðurstaða fyrir íþrótta- og æskulýðsmál er 36,9 millj. kr. sem er 100% af áætlun tímabilsins sem var 36,8 millj. kr.
Niðurstaða fyrir fræðslu og uppeldismál er 107,6 millj. kr. sem er 97% af áætlun tímabilsins sem var 110,4 millj. kr.

11.Upplýsingar um vinnumat og samkomulag sambandsins og FG

Málsnúmer 1502136Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar samkomulag Kennarasambands Íslands f.h. Félags grunnskólakennara á kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytingar á kjarasamningi aðila

Fundi slitið.