Upplýsingar um vinnumat og samkomulag sambandsins og FG

Málsnúmer 1502136

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 382. fundur - 03.03.2015

Lagt fram til kynningar samkomulag Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands f.h. Félags grunnskólakennara um breytingar á kjarasamningi aðila.
Aðilar urðu sammála um að ákvæði um viðbótarkennslu samhliða eigin kennslu, verði óbreytt eins og það var fyrir undirritun kjarasamnings aðila í maí 2014.
Gildistími og forsenduákvæði breyttust.
Fyrsta málsgrein 8. greinar, í samkomulagi aðila frá 20. maí 2014, um starf samstarfsnefndar fellur niður og einnig forsenduákvæði sem undirritað var samhliða sama dag.
Gildistími kjarasamningsins styttist til 31. maí 2016, sbr. 2. mgr.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 16.04.2015

Lagt fram til kynningar samkomulag Kennarasambands Íslands f.h. Félags grunnskólakennara á kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytingar á kjarasamningi aðila