Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

165. fundur 01. október 2026 kl. 17:00 - 19:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Kristjánsson aðalm.
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
  • Rut Jónsdóttir aðalm.
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Fræðslu- og frístundamál vinnuskjal

Málsnúmer 2609106Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fyrstu drög að vinnuskjali vegna framtíðar stefnumótunar í fræðslu- og frístundamálum Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn ræddu framtíðarsýn og möguleika á að efla og auka fjölbreytni í frístundastarfi barna og ungmenna í Fjallabyggð. Meðal annars var rætt um að nýta betur þekkingu og hæfileika skapandi fólks í samfélaginu til námskeiðahalds, mögulegt samstarf við ýmsa aðila sem bjóða upp á afþreyingu og tómstundastarf.

Nefndin telur mikilvægt að kortleggja með skýrum hætti hvaða frístunda- og tómstundastarf er í boði, hver þátttakan er og hvernig frístundastyrkur sveitarfélagsins nýtist og dreifist milli ólíkra greina og starfsemi. Jafnframt verði skoðað hvaða afþreying og námskeið eru í boði í nágrannasveitarfélögum og hvort tækifæri séu til samstarfs eða til að byggja upp sambærilegt framboð í Fjallabyggð.

Lagt er til að kallað verði eftir samtali við þá aðila sem nú þegar standa að íþrótta-, frístunda- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni og niðurstöðurnar nýttar við áframhaldandi stefnumótun nefndarinnar.

2.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Gjaldskrár 2027
Samþykkt
Gjaldskrá vegna Neon, grunnskólans og íþróttamiðstöðvar samþykktar en samþykkt gjaldskrár leikskólans frestað.

Fundi slitið - kl. 19:00.